Obama búinn að tryggja meirihluta fyrir Íranssamkomulaginu

Barbara Mikulski, öldungar­deildar­þingmaður í Banda­ríkjunum, hefur lýst yfir stuðningi við Írans­samkomu­lagið um kjarnorku. Hún er 34. þing­maðurinn sem styður samkomu­lagið sem þýðir að Barack Obama Bandaríkja­forseti getur andað léttað, því 34 þingmenn tryggja að samkomu­lagið verður samþykkt í þinginu.

Hagsmunaöfl vestanhafs hafa lagt mikið kapp á að sannfæra þingmenn demókrata um að styðja eða fella samkomu­lagið en stuðningur Mikulski er talið vera tákn um að andstæðingum samkomu­lagsins hafi mistekist að fylkja óákveðnum demó­krötum með sér.

Obama og Barbara Mikulski.

Aðeins tveir þingmenn demókrata hafa þegar lýst því yfir að þeir muni fella samkomu­lagið við Íran en auk þeirra eru allir repúblikanar eru andvígir samkomu­lagi Obama við stjórn­völd í Íran. Til að geta fellt ákvörðun Obama úr gildi þurfa tveir þriðju hlutar þingmanna að kjósa gegn samkomu­laginu.

Samkomulag Banda­ríkjanna, og hinna ríkjanna í Öryggis­ráði Sameinuðu þjóðanna auk Þýska­lands og Evrópu­sambandsins, við Íran felur í sér að Íranir falla frá áformum sínum um áfram­haldandi auðgun úrans og stöðva kjarnorku­áætlun sína gegn því að þessi öflugustu ríki heims létti viðskipta­þvingunum sínum á landið.

Tilkynnt var um samkomu­lagið 14. júlí og hefur bandaríska þingið til 17. september til að hafna samkomu­laginu. Verði samkomu­laginu hafnað af þinginu getur Obama beitt neitunar­valdi sínu, en um leið getur hann tíma­bundið ekki aflétt viðskipta­þvingunum í takt við samkomu­lagið. Forsetinn hefur lofað að beita neitunar­valdinu verði samkomu­lagið fellt. Til þess að fella neitun forseta úr gildi þurfa tveir þriðju þingmanna að kjósa svo. Staða Mikulski með samkomu­laginu gerir það hins vegar ómögulegt að samkomu­lagið verði ekki á endanum samþykkt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár