FBI handtók fjölda stjórnenda FIFA vegna spillingar - Sepp Blatter ekki einn þeirra

Svissnesk lögreglu­yfirvöld handtóku sex stjórn­endur Alþjóða­knattspyrnu­sambandsins (FIFA) snemma í morgun á Baur au Lac hótelinu í Zürich. Mennirnir eru grunaðir um aðild að spillingar­málum. Aðgerðin er hluti af rannsókn bandarísku alríkis­lögreglunnar (FBI) á spillingu og fjár­svikum innan FIFA og verða mennirnir sex allir fram­seldir til Banda­ríkjanna. Á meðal brota sem mennirnir eru sakaðir um eru peninga­þvætti, fjárglæfra­starfsemi og rafræn fjársvik. Brotin eru talin hafa átt sér stað á síðastliðnum tuttugu árum. Brotin tengjast meðal annars beiðnum ríkja um að halda heimsmeistarkeppnina í knatt­spyrnu. Sepp Blatter, hinn umdeildi forseti FIFA, var ekki einn hinna handteknu. Frá þessu er greint í New York Times.

Hótelið sem mennirnir voru hand­teknir á í morgun. MYND:EPA

Hótelið sem mennirnir voru handteknir á í morgun. MYND:EPA
Hótelið sem menn­irnir voru hand­teknir á í morgun. MYND:EPA

Ársfundur FIFA á að fara fram á hótelinu sem mennirnir voru hand­teknir næst­komandi föstudag. Þar verður meðal annars kosinn nýr forseti sambandsins en Blatter er í framboði til endur­kjörs. Sigri hinn 79 ára gamli Blatter mun hann leiða FIFA fimmta kjör­tímabilið í röð. Einn annar er í framboði. Ljóst er að hand­tökurnar munu hins vegar skaða Blatter.

Jack Warner, fyrrum vara­forseti FIFA.

Jack Warner, fyrrum varaforseti FIFA.
Jack Warner, fyrrum vara­for­seti FIFA.

Samkvæmt frétt New York Times verður ákæra gefin út á hendur alls átta stjórn­endum og stjórnar­mönnum FIFA til viðbótar við þá sex sem voru hand­teknir í Sviss. Á meðal þeirra sem einnig verða ákærðir, en voru hand­teknir í morgun, eru Jack Warner, fyrrum vara­forseti FIFA frá Trinidad og Tobago, Jef­frey Webb frá Caym­an Is­lands, vara­for­seti fram­kvæmda­stjórn­ar FIFA, og Eu­genio Figu­eredo frá Úrúg­væ. Búist er við að nokkrir stjórn­endur íþrótta­markaðs­fyrirtækja frá Banda­ríkjunum og Suður-Ameríku verði líka ákærðir en þeir eru grunaðir um að hafa greitt meira en 150 milljónir dala, um 20,2 milljarða króna, í mútur og greiðslur undir borðið og fengið í staðinn arðvæna fjölmiðla­samninga í tengslum við stórar knattspyrnu­keppnir á vegum FIFA.

FIFA hefur ekki viljað tjá sig um málið en búist er við því að tilkynning verði gefin út í dag. Bandarísk yfirvöld sem stýra rannsókn málsins munu halda blaðamanna­fund í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár