Innviðaráðherra staðfestir ekki aðalskipulagsbreytingar vegna vindorkuvera

Ráðherra hefur hafnað aðal­skipulags­breytingum vegna þriggja vind­orkuvera í Reyk­hólahreppi og Dalabyggð. Skipulags­stofnun hafði ítrekað bent sveitar­félögunum á atriði sem þyrfti að bæta úr.

Þrjú vind­orkuver í Reyk­hólahreppi og Dalabyggð verða ekki færð inn á aðal­skipulag þar sem innviða­ráðherra hefur ákveðiðað synja stað­festingu skipulags­breytinga þar um.

Sveitar­stjórnir Reyk­hólahrepps og Dala­byggðar samþykktu á síðasta ári breytingar á aðal­skipulagi vegna vind­orkuvera; í landi Garpsdals, Hróðnýjar­staða og Sólheima. Um er að ræða stefnu um iðnaðar­svæði þarf sem áformað er að reisa vind­myllur til raforku­framleiðslu með allt að 89 MW uppsettu afli í landi Garpsdals, 130 MW í landi Hróðnýjar­staða og 150 MW í landi Sólheima. Skipulags­stofnun hafði við vinnslu og afgreiðslu skipulags­tillagnanna ítrekað bent sveitar­félögunum á tiltekin atriði sem bæta þyrfti úr, til að unnt væri að staðfesta aðal­skipulags­breytingarnar, sem sveitar­félögin féllust ekki á.

Í vísaði Skipulags­stofnun afgreiðslu aðal­skipulags­breytinganna til innviða­ráðherra til ákvörðunar um stað­festingu, en stofnunin taldi að synja bæri stað­festingu aðal­skipulags­breytinganna þar sem efni og fram­setning þeirra samræmdist ekki lögum um ramma­áætlun (verndar- og orku­nýtingar­áætlun).

Í greinar­gerð Skipulags­stofnunar til ráðherra kom fram að áformuð vind­orkuver falla undir lög um ramma­áætlun og að hún væri bindandi við gerð skipulags­áætlana. Stofnunin benti á að í lögunum kemur fram að virkjunar­kostir sem ramma­áætlun tekur til og hefur ekki verið tekin afstaða til í gildandi ramma­áætlun skulu lúta sömu reglum og virkjunar­kostir í biðflokki áætlunarinnar. Umræddir virkjana­kostir eru ekki í gildandi ramma­áætlun.

Í tilkynningu á vef Skipulags­stofnunar segir að ráðherra hafi tekið ákvörðun um málið í byrjun apríl og að í ákvörðun hans sé tekið undir það með Skipulags­stofnun að skilgreining iðnaðar­svæðis án takmarkana samræmist ekki lögum. Einnig að forsenda þess að unnt sé að staðfesta aðal­skipulags­breytingarnar sé að fyrir­huguð iðnaðar­svæði séu skilgreind sem varúðar­svæði í aðal­skipulagi. Ákvörðun ráðherra, var því að synja stað­festingu á umræddum breytingum á aðal­skipulagi Reyk­hólahrepps og Dala­byggðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár