Er Apple að búa til bíl?

Hávær orðrómur gengur um að Apple sé að vinna að því að búa til bíl. Bryan Chaffin, annar stofnenda vefsins The Mac Observers, sem þykir mjög áreiðanlegur þegar kemur að fréttum af Apple, segist fullviss um að Apple sé á fullri ferð inn í bíla­iðnaðinn.

Skrif Chaffin koma í kjölfarið af frétt Business Insider á mánudag um að Apple væri að vinna að verkefnum sem gætu veitt Tesla, sem er leiðandi í fram­leiðslu og þróun rafbíla í heiminum, samkeppni. Um 50 manns fyrrum starfs­menn Tesla hafa ráðið sig til Apple undan­farin misseri. Hluti þess hóps eru verk­fræðingar sem gengdu lykil­stöðum hjá Tesla.

Hafa áður viðrað hugmyndir um iCar


Chaffin segir að hann hafi heim­ildir fyrir því að Apple hafi verið að leita að, og í sumum til­fellum ráðið, fólki hjá Tesla sem byggi yfir sér­hæf­ingu sem hent­aði best við bíla­smíði. Hann seg­ist líka hafa kom­ist að því að margir stjórn­endur fyr­ir­tækja með aðstetur í Kisildalnum gangi út frá því að Apple sé að vinna að þróun bíls.

apple_icar_sf2
apple_icar_sf2

Apple hefur ekki tjáð sig um orðróminn. Ef hann er réttur þá yrði það ekki í fyrsta sinn sem fyrir­tækið hefði hugsað um að búa til bíl. Í fyrra sagði einn stjórnar­manna Apple að Steve Jobs hafi langað til að búa til iCar.

Tekjur Apple á síðasta ársfjórðungi 2014, slógu öll met. Fyrir­tækið rakaði saman rúmum átján milljörðum bandaríkja­dölum í hagnað á tíma­bilinu, af tæplega 75 milljarða dala tekjum Apple á síðasta ári. Hagnaðurinn var sá mesti sem nokkurt fyrirtæki hefur skilað í sögunni. Eins og kunnugt er er sala í jóla­mánuðinum inn í uppgjöri fyrir fjórða ársfjórðung, en vörur Apple seldust ævintýra­lega í desember.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár