„Græn“ skrifstofa Norðurlandaráðs í Abu Dhabi opnar möguleika fyrir íslensk fyrirtæki

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, opnaði formlega nýja skrif­stofu Norður­landaráðs í Masdar-borg í Abu Dhabi á dögunum, það er frumkvöðla­setur fyrir græn tækni­fyrirtæki á Norður­löndunum. Þetta kemur fram í frétta­tilkynningu frá Nordic Innovation sem rekur skrif­stofuna.

Í frumkvöðla­setrinu fá fyrir­tækin aðstöðu, aðgang að Norrænu tengsla­neti og njóta þeirra fríðinda sem bjóðast á fríverslunar­svæði Masdar-borgar. Skrif­stofan er ætluð grænum tækni­fyrirtækjum á Norður­löndunum sem hyggja á land­vinninga í Mið-Austur­löndum, sem og þeim fyrir­tækjum sem nú þegar hafa gert strand­högg í Sameinuðu arabísku fursta­dæmunum og við Persaflóa.

Samkvæmt frétta­tilkynningunni hafa nú þegar þó nokkur græn tækni­fyrirtæki lýst yfir áhuga sínum á að leigja skrif­stofur í frumkvöðla­setri Norður­landaráðs í Masdar-borg. Skrif­stofur eru leigðar út bæði til lengri og skamms tíma og leigu­verðinu er stillt í hóf svo smærri fyrirtæki hafi efni á að leita þangað eftir húsnæði.

Í ræðu sinni við opnun frumkvöðla­setursins, sagði forseti Íslands að græn tækni væri einn helsti styrk­leiki fyrir­tækja á Norður­löndunum og hann vonist til að tækni­fyrirtækin sjái hag sinn í því að nýta sér frumkvöðla­setur Norður­landaráðs í Sameinuðu arabísku fursta­dæmunum. Þá hafi íslenska fyrir­tækið Reykjavík Geothermal og Nýsköpunar­miðstöð Íslands nú þegar fundið samstarfs­aðila í Sameinuðu arabísku fursta­dæmunum, sem renni stoðum undir að spennandi markaður í Mið-Austur­löndum sé sannarlega til staðar.

Abu Dhabi og Sam­ein­uðu arab­ísku fyrsta­dæmin hafa á síð­ustu árum orðið að nýjum hnatt­rænum mið­punkti fyrir end­ur­nýj­an­lega orku og græna tækni. Til að mynda er Alþjóða­stofnun end­ur­nýj­an­legrar orku stað­sett í Masdar-borg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár