Mun ekki hefja rannsókn að svo stöddu í Landsréttarmálinu

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu í dag að ekki skyldi vera hafin rann­sókn Lands­rétt­ar­mál­inu af ótta við truflun á dóms­málum þeirra sem kunni að leita réttar síns.

Frá fundi Stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Frá fundi Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar.

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd mun ekki hefja rann­sókn á verk­lagi við vinnslu til­lögu til Alþingis um skipan dóm­ara í Lands­rétt. Þetta kemur fram á vef mbl.is.

Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pírata, segir að burt séð frá því hvað muni koma út úr dóms­málum varð­andi skipan dóm­ara við Lands­rétt kunni að vera til­efni til að rann­saka verk­lagið við vinnslu til­lög­unnar til Alþingis. 

Hins vegar hafi nefndin ákveðið það að fara ekki af stað með rann­sókn í mál­inu vegna mögu­legrar hættu á að spilla fyrir dóms­málum þeirra fjög­urra aðila sem kunni að leita réttar síns. Þetta hafi verið gert í kjöl­far mats umboðs­manns Alþingis og aðal­lög­fræð­ing Alþingis, en þeir voru kall­aðir fyrir nefnd­ina fyrr í dag. Nú þegar hafa tveir þess­ara fjög­urra aðila, Jóhannes Rúnar og Ástráður Har­alds­son, stefnt rík­inu vegna vinnu­bragða dóms­mála­ráð­herra.

„Aftur á móti getur verið, ef að þessir fjórir aðilar lýsa yfir því að þeir setji sig ekki á móti því að rann­sókn fari fram sam­hliða, að þá munum við kalla eftir því að stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd komi aftur saman og meti stöð­una í því ljósi”, segir Jón Þór í við­tali við mbl.is.

Ekki hafi verið búið að afskrifa til­lög­una, hún sé ennþá á borð­inu. Að lokum bendir Jón Þór á að það sé lyk­il­at­riði að rann­sóknin trufli ekki fyrir rétt­indum borg­ar­anna að sækja rétt sinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár