Jóhannes Rúnar stefnir ríkinu vegna skipunar á Landsréttardómara

Jóhannes Rúnar Jóhanns­son, hæstar­rétt­ar­lög­maður, fetar í fót­spor Ástráðs Har­alds­sonar og stefnir rík­inu fyrir skipan dóm­ara við Lands­rétt.

Jóhannes Rúnar Jóhannsson, hæstaréttarlögmaður
Jóhannes Rúnar Jóhanns­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður Mynd: Aðsent

Jóhannes Rúnar Jóhanns­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður, hefur ákveðið að stefna rík­inu vegna skip­unar dóms­mála­ráð­herra á dóm­urum við Lands­rétt. Fetar hann í fót­spor Ástráðs Har­alds­sonar, en Kjarninn birti stefnu hans 12. júní. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu sem Jóhannes sendi frá sér fyrr í dag. 

Jóhannes Rúnar sótti um emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt og var meðal 15 hæf­ustu umsækj­enda sam­kvæmt mats­nefnd dóms­mála­ráð­herra, en þrátt fyrir það hafi ráð­herr­ann ákveðið að ganga fram hjá umsókn hans.

Í frétta­til­kynn­ing­unni segir Jóhannes: „Það er vald­níðsla þegar stjórn­vald mis­notar opin­bert vald með þeim hætti að ólög­mæt og ómál­efn­an­leg sjón­ar­mið, svo sem vin­átta, flokks­hags­munir eða óvild, ráða ákvörðun þess”.

Jóhannes bendir á að ákvörðun dóms­mála­ráð­herra eigi að byggja á mál­efna­legum sjón­ar­miðum, en hann telur rök­stuðn­ing ráð­herr­ans ekki stand­ast neina efn­is­lega skoðun. Hún sé almenns eðlis, ógagnsæ og óljós.

Undir lok frétta­til­kynn­ing­ar­innar segir Jóhannes: “Ég hef því tekið ákvörðun um að höfða dóms­mál á hendur íslenska rík­inu til að fá það stað­fest að rang­lega hafi verið staðið að málum og hálfu dóms­mála­ráð­herra og Alþingis við skipun í emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt."

Frétta­til­kynn­ing­una í heild sinni má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár