Ástráður stefnir ríkinu og dómsmálaráðherra

Ástráður Har­alds­son hrl. ætlar að höfða mál vegna þess hvernig staðið var að skipan dóm­ara við Lands­rétt.

Ástráður Har­alds­son hrl. hyggst leita réttar síns fyrir dóm­stólum vegna þeirrar ákvörð­unar Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra að skipa hann ekki dóm­ara við Lands­rétt. Hæf­is­nefnd mat hann einn af 15 hæf­ustu umsækj­end­unum og mælti með honum í starfið, en hann var númer 14 í mati nefnd­ar­innar.

Í við­tali við Frétta­blaðið í dag seg­ist hann ætla að stefna rík­inu og dóms­mála­ráð­herra.

Í við­tal­inu segir hann að það sé óum­deild regla íslensks stjórn­sýslu­réttar að ráð­herra sé bund­inn að því að skipa hæf­asta umsækj­and­ann í emb­ætti hverju sinni.

„Ég geri mér grein fyrir því að þetta mun taka á. Sá sem lendir í stöðu eins og þess­ari og þarf að takast á við stjórn­völd út af því gerir það að ekki að gamni sínu,“ segir Ástráður.

Umsækj­endur sem einnig voru á meðal 15 efstu á lista hæf­is­nefnd­ar­innar, en voru ekki í loka­hópi ráð­herra, Jón Hösk­ulds­son og Jóhannes Rúnar Jóhanns­son, segj­ast báðir vera að íhuga að höfða mál.

Á vef Kjarnans í gær voru birtar ítar­legar upp­lýs­ingar um mat á hæfi umsækj­enda. Dóm­ar­arnir sem dóms­mála­ráð­herra gerði til­lögu um voru Aðal­steinn E. Jón­as­son, Arn­fríður Ein­ars­dótt­ir, Ásmundur Helga­son, Davíð Þór Björg­vins­son, Her­vör Þor­valds­dótt­ir, Ing­veldur Ein­ars­dótt­ir, Jóhannes Sig­urðs­son, Jón Finn­björns­son, Krist­björg Steph­en­sen, Oddný Mjöll Arn­ar­dótt­ir, Ragn­heiður Braga­dótt­ir, Ragn­heiður Harð­ar­dótt­ir, Sig­urður Tómas Magn­ús­son, Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son og Þor­geir Ingi Njáls­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár