Stuðningur við Donald Trump eykst hratt

Donald Trump fær vaxandi stuðning Bandaríkja­manna, þrátt fyrir að Banda­rík­in hafi nú greint flest til­felli COVID-19 af öll­um ríkj­um heims­ins.

Donald Trump
Donald Trump Hefur haldið dag­lega blaða­manna­fundi um veiruna, þar sem hann hefur sjálfur verið í for­grunni. Mynd: Drew Angerer / AFP

Stuðningur við Donald Trump Bandaríkja­forseta hefur stóraukist síðustu daga og hefur hann ekki notið meira trausts frá því skömmu eftir að hann tók við embættinu.

Donald Trump tók við sem Bandaríkja­forseti 23. janúar 2017. Innan þriggja vikna frá embættis­tökunni var meirihluti lands­manna andvígur honum og hefur stuðningur við hann mælst með allra minnsta móti miðað við aðra forseta.

Samkvæmt nýjustu tölum, sem sýna veginn stuðning við forsetann út úr öllum könnunum, er stuðningur við Trump nú í fyrsta sinn orðinn jafn­mikill og í janúar 2017. Nú hefur einnig andstæðingum forsetans fækkað og eru þeir í fyrsta sinn frá mars 2017 orðnir minna en helmingur lands­manna.

Trump er nú vinsælli en George Bush eldri var á sama tíma í forsetatíð hans, sem og Jimmy Carter árið 1980. Stuðningur við Trump er aðeins rúmum tveimur prósentu­stigum minni en stuðningur við Barack Obama á sama tíma forseta­tíðar.

Ánægja með viðbrögð við veirunni

Um 60 prósent Bandaríkja­manna segjast sátt við viðbrögð Trumps vegna COVID-19 faraldursins, samkvæmt könnun Gallups. Á sama tíma hafa Banda­ríkin nú orðið það land sem er með flest tilfelli COVID-19 í heiminum. Í gær bættust 17 þúsund tilfelli við í Banda­ríkjunum, en næst flest viðbætt tilfelli voru rúm átta þúsund á Spáni. Þannig fjölgaði tilfellum í Banda­ríkjunum um 25 prósent á einum degi.

Upphaf­lega gerði Trump lítið úr hættunni, sagði frétta­miðla ýkja veiruna og kallaði faraldurinn „svika­myllu Demókrata“. Frá því hann breytti skila­boðum sínum 11. mars hefur stuðningur við hann aukist hratt.

Samkvæmt nýrri könnun hafa 9 af hverjum 10 Bandaríkja­mönnum áhyggjur af kóróna­veirunni, sem er mikil breyting frá því áður, þegar Repúblikanar höfðu mun minni áhyggjur af veirunni en Demó­kratar.

Skila­boðin breytt­ustViðbrögð Trumps við kór­óna­veirunni voru að gera lítið úr hætt­unni. Síðan þá hefur hann lagt áherslu á að um sé að ræða „kín­verska veiru“.
Stuðn­ingur við TrumpApp­el­sínugula línan sýnir and­stöðu við Trump en græna línan stuðn­ing. Grafið nær aftur til emb­ætt­is­töku Trumps til dags­ins í dag. Gögnin eru vegið með­al­tal af öllum könn­unum.

Aukinn stuðningur í krísu

Talið er að Trump njóti nú þess að í krísu­ástandi, sérstak­lega þegar hægt er að greina utan­aðkomandi ógn, eykst stuðningur við stjórn­völd. Áhrifin eru kölluð Fána­áhrifin, eða Rally 'round the flag effect. Eitt af lykil­atriðum í auknum stuðningi við stjórn­málamann er að hann sé áberandi í viðbrögðum við krísunni.

Þannig fór George W. Bush Bandaríkja­forseti úr því að njóta stuðnings 39 prósent kjósenda í 90 prósent stuðning beint í kjölfar hryðjuverka­árásanna á Banda­ríkin 11. september 2001. Eftir að stuðningur við hann þvarr tók hann ákvörðun um að ráðast inn í Írak í mars 2003. Um leið jókst stuðningur við hann úr 57 prósent í 71 prósent.

Faðir George W. Bush, George Bush eldri, jók stuðning við sig um 16 prósentu­stig frá júlí til ágúst 1990, eða úr 60% í 76%, á milli þess sem hann hóf innrás í Írak í Persaflóa­stríðinu. Stuðningur við Bush eldri náði síðan hámarki í 89% í mars 1991, en átti eftir að falla niður í 29% vegna lélegs efnahags.

Trump hefur greint frá því að hann líti á sig sem „stríðs­forseta“ og hefur hann lagt sig fram um að stýra blaðamanna­fundum um áhrif veirunnar sjálfur, þrátt fyrir gagnrýni á ítrekaðar rang­færslur hans um veiruna. Þá hefur hann lagt áherslu á að um sé að ræða „kínverska“ og „útlenska“ veiru og ríkis­stjórn hans barist fyrir því að nota heitið „Wuhan-vírus“ í yfir­lýsingu G-7 ríkjanna. 

New York Times hefur eftir Alec Tyson, rann­sakanda hjá Pew Research Center, að ólíklegt sé að margir breyti skoðun sinni á Trump. „Fólk hafði skoðun á forsetanum mjög snemma í stjórnartíð hans og það voru mjög fastheldnar skoðanir. Það er ólíklegt að fólk sé að þróa með sér skoðun á Trump núna.“

Á Íslandi hefur stuðningur við ríkis­stjórnina aukist um 14 prósentu­stig, samkvæmt nýjustu könnun MMR, eftir að áhrifa kóróna­veirunnar fór að gæta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár