Karl Gauti og Ólafur gagnrýna forseta Alþingis

Þing­menn­irnir Karl Gauti Hjalta­son og Ólafur Ísleifs­son mót­mæltu því á fyrsta þing­fundi árs­ins að hafa ekki fengið úthlutað ræðu­tíma. Karl Gauti sagði vinnu­brögð þing­for­seta óboð­leg.

Karl Gauti Hjaltason og Ólafur Ísleifsson
Karl Gauti Hjalta­son og Ólafur Ísleifs­son Mynd: Samsett mynd/Alþingi

Þing­menn­irnir Karl Gauti Hjalta­son og Ólafur Ísleifs­son, sem báðir standa utan flokka eftir Klaust­ur­málið, mót­mæltu því á fyrsta þing­fundi árs­ins að hafa ekki fengið úthlutað ræðu­tíma. Karl Gauti sagði vinnu­brögð þing­for­seta óboð­leg.

Báðir töl­uðu þeir um fund­ar­stjórn for­seta við upp­haf þing­fundar en Karl Gauti kvart­aði undan því að hvorki hann né Ólafur hefðu fengið að tala við umræðu á Alþingi í dag. Hann sagði þá Ólaf hafa til­kynnt þing­for­seta í des­em­ber­byrj­un að þeir hygð­ust starfa utan flokka og hafa með sér sam­starf, og ósk­uðu þeir eft­ir því að til­lit yrði tekið til sam­starfs þeirra.

Ólafur tók einnig til máls en hann sagði vinnu­brögð for­seta Alþingis vekja furðu og valda von­brigðum því hann hefði staðið í þeirri trú þar til rétt áður en umræðan hófst að hann myndi vera meðal ræðu­manna. „Af hálfu skrif­stofu Alþing­is var okk­ur boðið að halda fimm mín­útna ræðu en svo bregður við skömmu áður en umræður hefj­ast og að full­trúi okk­ar yrði ekki á mæl­enda­skrá,“ sagði Ólaf­ur.

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, svar­aði þing­mönn­unum með því að engar óskir um þátt­töku þeirra hefðu borist inn á hans borð. Ekki hefði verið hægt að hverfa frá því sam­komu­lagi sem lægi fyrir um fund­inn en hann sagði að réttur þeirra sem þing­menn utan flokka, eins og kemur fram í þing­sköpum, verði virtur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár