Ráðherra skipar stýri­hóp um mótun nýsköp­un­ar­stefnu fyrir Ísland

Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir hefur skipað stýrihóp um mótun heild­stæðrar nýsköpunar­stefnu fyrir Ísland. Stefnan skal liggja fyrir ekki síðar en 1. maí næst­komandi.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir ráðherra nýsköpunar­mála hefur skipað stýrihóp um mótun heild­stæðrar nýsköpunar­stefnu fyrir Ísland. Stýri­hópurinn fundaði í fyrsta sinn í gær. Þetta kemur fram í frétt atvinnu­vega- og nýsköpunar­ráðuneytisins.

Í stýri­hópnum eru fulltrúar atvinnu­lífs, háskóla- og vísinda­samfélags, sprota- og tækni­fyrirtækja og þeirra stjórn­málaflokka sem eiga sæti á Alþingi. Stefnan skal liggja fyrir ekki síðar en 1. maí næst­komandi.

Stýri­hópinn skipa eftir­farandi:

  • Guðmundur Hafsteinsson, formaður 
  • Ari Kristinn Jónsson 
  • Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir 
  • Davíð Helgason 
  • Eyjólfur Guðmundsson 
  • Heiðrún Lind Marteins­dóttir
  • Helga Valfells 
  • Hjálmar Gíslason 
  • Inga Sæland
  • Jóhanna Vigdís Guðmunds­dóttir
  • Jón Steindór Valdimarsson 
  • Kristján Hall 
  • Líneik Anna Sævars­dóttir 
  • María Braga­dóttir 
  • Ólafur Þór Gunnarsson 
  • Ragn­heiður Magnúsdóttir 
  • Sigurður Hannesson 
  • Steinunn Gests­dóttir 
  • Tryggvi Hjaltason

Samkvæmt fréttinni mun verk­efnastjórn fara fyrir stefnu­mótunar­vinnunni. Formaður hennar er Þórlindur Kjartansson. Þórlindur hefur starfað mikið með ýmsum nýsköpunar­fyrirtækjum við samninga- og sölumál. Hann var stjórnar­formaður Innovit og einn af stjórn­endum hjá Meniga. Verkefnis­stjóri er Sigríður Valgeirs­dóttir, atvinnu­vega- og nýsköpunar­ráðuneytinu.

Í frétt Kjarnans frá því fyrr í vikunni segir ráðherra að á tímum mikilla breytinga sé öflug og kraft­mikil nýsköpun í atvinnu­lífinu forsenda þess að Íslendingar tryggi góð lífskjör hér á landi til framtíðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár