Guðmundur Hafsteinsson formaður stýrihóps um mótun nýsköpunarstefnu fyrir Ísland

Guð­mundur Haf­steins­son yfir­maður vöru­þró­unar á Google Assistant verður for­maður í stýri­hópi um mótun nýsköp­un­ar­stefnu fyrir Ísland.

Guðmundur Hafsteinsson
Guð­mundur Haf­steins­son Mynd: Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið

Guð­mundur Haf­steins­son yfir­maður vöru­þró­unar á Google Assistant hefur tekið að sér for­mennsku í stýri­hópi um mótun nýsköp­un­ar­stefnu fyrir Ísland.

Þetta kemur fram í frétt atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins.

Guð­mundur hefur starfað hjá Google frá árinu 2014 og leitt starf við margar af helstu tækninýj­ungum fyr­ir­tæk­is­ins. Guð­mundur er með MBA gráðu frá MIT og próf í raf­magns- og tölvu­verk­fræði frá Háskóla Íslands.

Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir ráð­herra nýsköp­un­ar­mála segir að á tímum mik­illa breyt­inga sé öflug og kraft­mikil nýsköpun í atvinnu­líf­inu for­senda þess að Íslend­ingar tryggi góð lífs­kjör hér á landi til fram­tíðar. „Guð­mundur hefur um ára­bil verið stjórn­andi í leið­andi tækni­fyr­ir­tæki á heims­vísu og það er ómet­an­legt að fá hans sýn og þekk­ingu nú þegar að við leggjum á ráðin hvernig árang­urs­rík­ast sé að takast á við áskor­anir fram­tíð­ar­innar.“

Frá rit­stjórn: Guð­mundur Haf­steins­son á 4,83 pró­senta hlut í Kjarn­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár