Fleiri konur fjármagna sig í gegnum Karolina fund en karlar

Fleiri konur hafa náð að full­fjármagna verkefni í gegnum hópfjármögnunar­síðuna Karolina Fund en karlar. Alls eru 51 prósent þeirra verkefna sem hafa verið full­fjármögnuð leidd af konum en 49 prósent af körlum. Karlar hafa þó safnað hærri upphæð að meðaltali en konur, en þeir setja líka setja sér líka hærri markmið í söfnunum sínum.

Þetta kemur fram í tölum sem Karolina Fund hefur látið Kjarnanum í té. Um er að ræða öll þau verkefni sem hafa reynt að fjármagna sig í gegnum vefinn frá því að hann var settur í loftið í október 2012. Af þeim 229 verkefnum sem hafa reynt að hópfjármagna sig á frá byrjun og þar til í lok síðustu viku í gegnum Karolina Fund hefur 175 tekist ætlunar­verkið, eða 76 prósent. Því ná þrjú af hverjum fjórum verkefnum sem sett eru af stað á Karolina Fund söfnunar­markmiði sínu og verða að veruleika.

Frá því að sú tölfræði var tekin saman hefur fjár­mögnuðum verkefnum fjölgað enn meira, og eru nú 188 talsins. Alls hafa 19.323 manns heitið samtals 1.036.472 evrum, um 147 milljónum króna á gengi dagsins í dag, á verkefni sem birst hafa á Karolinafund.com.

Tónlist, bækur kvikmyndir og afþreying

Karolina fund var stofnað árið 2012. Fyrir­tækið er vettvangur þar sem hægt er að setja inn hugmynd, finna hæfileika til að starfa að hugmyndinni og ná í fjármagn til þess að gera hana að veruleika. Fjár­mögnunin gengur þannig fyrir sig að sett eru markmið um hversu mikið fjármagn hvert verkefni þarf að ná til að fjármagna sig og áhuga­samir geta síðan heitið á verkefnin. Ef markmiðin nást greiða þeir sem hétu á verkefnin og í flestum tilfellum fá þeir eitthvað í staðinn, t.d. ef verkefnið er bókaskrif þá fá þeir eintak af bókinni. Þetta kallast hópfjármögnun og er stundað víða um heim, til dæmis á þekktum síðum eins og Indigogo og Kickstarter.

Verkefnin sem hafa náð að fjármagna sig með þessum hætti eru allskonar. Af full­fjár­mögnuðum verkefnum eru 35 prósent tónlistar­verkefni, 25 prósent bækur eða tímarit, 13 prósent listir og afþreying og 11 prósent kvik­myndir.

Kjarninn hefur lengi verið í samstarfi við Karolina fund og birt verkefni vikunnar á hverjum laugar­degi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár