Stórkostlegir tónleikar

Tón­list­ar­gagn­rýn­and­inn Arndís Björk brá sér á Stór­tón­leika Schola Cantorum sem fram fóru í Eldborg fyrsta sunnu­dag í aðventu. Og hreifst mjög!

Stórtónleikar Schola Cantorum sem fram fóru í Eldborg fyrsta sunnudag í aðventu.
Stór­tón­leikar Schola Cantorum sem fram fóru í Eldborg fyrsta sunnu­dag í aðventu.
Tónleikar

Mar­íu­vesper

Vespro della beata Vergine eftir Claudio Monteverdi

Harpa Eldborg 3. desember 2023

Schola Cantorum Alþjóðlega Barokksveitin í Reykjavík Scandinavian Cornetts and Sackbuts Cantores Islandiae Skólakór Kársness

Stjórnandi: Bjarni Frímann Bjarnason

Gefðu umsögn

Covid-far­ald­ur­inn setti ýmis­legt úr skorðum eins og við munum öll og fór tón­list­ar­lífið ekki var­hluta af því. Mörgum við­burðum stórum og smáum var frestað og sumum jafn­vel slaufað alveg. Sem betur fer hafa margir við­burð­irnir raun­gerst síðar og svo var um stór­tón­leika Schola Cantorum sem fram fóru í Eldborg fyrsta sunnu­dag í aðventu en þeir áttu upp­haf­lega að fara fram í Hall­gríms­kirkju í mars 2020 en vegna breyttra aðstæðna þá voru þeir haldnir í Eldborg.

Einn af þessum stóru áhrifavöldum

Monteverdi er einn af þessum stóru áhrifa­völdum í tón­list­inni, sem átti stóran þátt í að þróa tón­list frá end­ur­reisn yfir í barokk, ekki síst með þessu verki, Mar­íu­vesper eða aft­an­söng Maríu. Verkið er frá því snemma á 17. öld útgefið árið 1610 þegar Monteverdi var rúm­lega fer­tugur, þá þegar þekktur fyrir fram­úr­skar­andi madrigala sína og fleiri verk. Hann stóð á tíma­mótum, var óánægður með stöðu sína við Mantua …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár