Þorsteinn Már telur að Már eigi að segja af sér: „Margir grétu“

„Ég segi að númer eitt, tvö og þrjú þá á Már Guðmundsson að bera ábyrgð. Hann er yfirmaður Seðla­bankans. Hann á að bera þessa ábyrgð. Að sjálfsögðu á Már Guðmundsson að segja af sér. Hann er búinn að reka mál gagnvart hundruðum einstaklinga og fjölda fyrir­tækja, að ástæðu­lausu. Þetta fólk hefur þurft að borga lögfræði­kostnaðinn sinn sjálft.“

Þetta segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, í viðtali við Eggert Skúlason, ritstjóra DV, í DV í dag. Í viðtalinu er Þorsteinn Már spurður um rannsókn Seðla­bankans á gjaldeyris­viðskiptum fyrir­tækisins. Eins og Kjarninn hefur greint frá þá felldi sérstakur saksóknari málið niður á hendur Þorsteini Má og öðrum starfs­mönnum Samherja, en um þrjú og hálft ár eru liðið frá því að húsleit var gerð í höfuð­stöðvum Samherja.

Í DV í dag kemur fram að Þorsteinn Már ætli að skrifa bréf til bankaráðs Seðla­bankans og óska eftir því að „brjálsemi verði stöðvuð“.

„Bón mín til Seðla­bankaráðs er einföld. Það er kominn tími til að þið stöðvið þetta brjálæði gagnvart svona mörgum. Það að fá stöðu sakbornings er það alvarlegt mál og mikið inngrip inn í líf fólks. Mín skoðun er að það hafi verið farið ótrúlega illa með þetta vald. Ég mun biðla til Seðla­bankaráðs að þeir stöðvi þessa brjálsemi. Bankanum var gefið ákveðið lögreglu­vald og hann kann ekkert með þetta að fara. Stoppið þetta,“ segir Þorsteinn Már.

Margir grétu


Eggert spyr Þorstein Má að því hversu erfitt þetta hafi verið honum, og vísar þá til rann­sóknar Seðla­bank­ans, og einnig hvort hann hafi grátið á tíma­bili. Í frá­sögn DV segir að löng þögn hafi mynd­ast eftir að spurn­ingin var borin upp og að Þor­steinn Már hafi litið út um glugg­ann. Síðan hafi hann sagt lágum rómi: „Ég grét ekki en það grétu margir aðrir. Mér leið að hluta til eins og á strand­stað fyrir tíu árum,“ og vís­aði til þess þegar skipið Baldvin Þor­steins­son strand­aði skammt frá Vík í Mýrdal.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár