Þorsteinn Már: Skipulagðar ofsóknir sem spilltu orðspori um allan heim

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri og einn stærsti eigandi Samherja, segir niður­stöðu sérstaks saksóknara, um að fella niður mál á hendur honum og öðrum starfs­mönnum Samherja, vera gleðiefni og sýna glögglega að fyrir­tækið og starfs­menn þess hafi farið að lögum og sinnt störfum af heilindum. Seðla­bankinn hafi farið fram með tilhæfu­lausar ásakanir og að „offorsi“ ruðst inn á skrif­stofur Samherja í húsleitar­tilgangi, í mars 2012, án þess að hafa nokkuð í höndunum sem studdi þær aðgerðir eða ásakanir um lögbrot yfir höfuð.

Þetta kemur fram í ítarlegu bréfi Þorsteins Más til starfs­manna Samherja sem birt hefur verið á vef félagsins. Í bréfinu rekur Þorsteinn Már málsatvik, hvernig það þróaðist á rann­sóknartíma og á hverju ákvörðun sérstaks saksóknara byggir.

Í bréfinu segist Þorsteinn Már hafa þurft að svara fyrir verð­lagningu á fimm tonnum af bleikju, á ríflega þriggja ára tímabili, sem að mati Seðla­bankans hafi verið of lágt. Bankinn hafi misskilið og reiknað verðið út ranglega, þar sem hann hafi ekki notað réttar forsendur í skoðun sinni á málinu. „Sem dæmi um offorsið sat ég í yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara vegna kæru Seðla­bankans þar sem ég var ásakaður um alvarlegt og gróft brot yfir langt tímabil sem fólst í að selja samtals 5 tonn af bleikju á 39 mánaða tímabili, á verði sem var tveimur milljónum króna of lágt að mati Seðla­bankans. Þegar ég bað um gögn til rökstuðnings kæru Seðla­bankans um verð annarra útflytjenda á bleikju til Þýska­lands kom í ljós að engin slík gögn voru til þar sem enginn annar seldi bleikju til Þýska­lands á sama tímabili. Þess í stað sýndi starfs­maður sérstaks saksóknara mér skýrslu Seðla­bankans þar sem bankinn bar saman verð á bleikju, sem við seldum til Finnlands, við 5 tonnin sem seld voru til Þýska­lands. Til að fá sem neikvæðasta niður­stöðu úr þessum saman­burði varð Seðla­bankinn að horfa framhjá gjör­ólíkum afhendingar­skilmálum og mismun­andi markaðs­aðstæðum. Í öðru tilfellinu var búið að byggja upp markað og í hinu tilfellinu var verið að reyna að búa til nýjan markað. Yfirheyrslan fór fram tæpum tveimur árum eftir að stofnað var til málsins og nokkrum mánuðum eftir að seðla­bankastjóri tilkynnti mér í gegnum hádegis­fréttir fjöl­miðils að hann hefði kært mig til sérstaks saksóknara. [...] Eins og þetta einfalda dæmi sýnir hefði verið hægt að koma í veg fyrir þetta mál eða leysa það fyrr. Í hvert sinn sem við fengum aðgang að gögnum málsins var unnt að sýna fram á að ásakanir bankans voru ekki á rökum reistar. Þessi vinnu­brögð horfa þannig við mér að markmiðið hafi fyrst og fremst verið að valda okkur skaða frekar en að sannreyna ásakanir um meint lögbrot. [...] Því miður stukku margir á vagninn með Seðla­bankanum. Hef ég oft þurft að horfa upp á að vegið sé á ósmekk­legan hátt að mannorði mínu og ykkar starfs­manna á opinberum vettvangi. Ég hef oft sagt að tjónið sem af þessu hefur hlotist er gríðarlegt. Mér er ekki efst í huga fjárhagslegt tjón heldur hvernig þessar skipulögðu ofsóknir hafa spillt orðspori okkar um allan heim,“ segir meðal annars í bréfi Þorsteins Más.

Þá er marg­ítrekuð sú niður­staða sérstaks saksóknara í málinu að engin lög hafi verið brotin og að starfs­fólk Samherja hafi unnið heiðar­lega að framgangi mála innan fyrir­tækisins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár