Fyrrverandi forsætisráðherra Namibíu: „Íslensk stjórnvöld ollu okkur vonbrigðum“

Fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Namibíu er ósáttur við að íslensk stjórn­völd hafi ekki boðið fram aðstoð sína eftir að upp komst um fram­göngu Samherja í land­inu. Hann tap­aði for­manns­slag og hætti í póli­tík eftir umdeildar kosn­ingar innan flokks­ins, þar sem grunur leikur á að pen­ingar frá Samherja hafi verið not­aðir til að greiða fyrir atkvæði.

„Íslensk stjórn­völd hafa valdið okkur von­brigðum, það hvarfl­aði aldrei að okkur annað en þau myndu bjóða fram aðstoð sína og sýna sam­stöðu með fátækum Namib­íu­mönnum sem eru fórn­ar­lömb þess­ara glæpa,“ segir Nahas Angula, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Namibíu, í við­tali við Stundina. 

„Það sem hérna gerð­ist var auð­vitað ekk­ert annað en rán og það er mik­il­vægt að Íslend­ingar átti sig á því að vegna þess sem gerð­ist varð namibískt sam­fé­lag af háum fjár­hæðum sem ann­ars hefðu farið í að byggja upp hús­næði, heil­brigð­is­þjón­ustu, vatns­veitur og inn­viði sem sár­lega vantar hér. Allt bendir hins vegar til þess að þessi verð­mæti hafi endað í vösum fámennrar klíku og íslensks fyr­ir­tækis.“

Aldarfjórðung í ríkisstjórn

Nahas Angula er tæp­lega átt­ræður og var til ára­tuga í far­ar­broddi sjálf­stæð­is­bar­áttu lands­ins og áhrifa­mik­ill stjórn­mála­maður eftir að sjálf­stæðið var tryggt í lok níunda ára­tug­ar­ins. Hann var hluti af rík­is­stjórn Namibíu í 25 ár. Var fyrsti mennta­mála­ráð­herra þjóð­ar­innar …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Thorunn Ravn skrifaði
    Uuuu…íslensk stjórnvöld styðja samskonar rán á Íslandi…af hverju ættu þau að hjálpa Namibíumönnum? Þeim finnst þetta bara eðlilegir viðskiptahættir🤷‍♀️
    1
  • Árni Guðnýar skrifaði
    Og það sem verra er að Íslenskstjórnvöld hafa marg oft og sí endur tekið valdið okkur íbúunum vonbrygðum.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin í 1001 nótt

FréttirSamherjaskjölin í 1001 nótt

„Þögn íslenskra stjórn­valda áber­andi“

Í lok októ­ber fór fram umræða á Alþingi um rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins í Namib­íu­mál­inu og orð­spori Íslands þar sem stór orð féllu. Frum­mæl­and­inn, Þór­hildur Sunnar Ævars­dóttir, taldi að fá þyrfti svör við því hvort dráttur á rann­sókn máls­ins á Íslandi væri eðli­legur, hvort yfir­völd á Íslandi tækju málið alvar­lega og hvort rann­sókn­ar­stofn­anir á Íslandi væru nægi­lega vel fjár­magn­aðar.
ÚttektSamherjaskjölin í 1001 nótt

Kaupa fólk utan fjöl­skyld­unnar út í millj­arða við­skiptum

Sam­herj­a­fjöl­skyldan hefur á und­an­förnum mán­uðum keypt eign­ar­hluti minni hlut­hafa í útgerð­inni og á að heita má tíunda hvern fisk í land­helg­inni. Börn Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Krist­jáns Vil­helms­sonar fara nú nær ein með eign­ar­hluti í félag­inu fyrir utan litla hluti þeirra tveggja. Millj­arða við­skipti hafa svo átt sér stað á milli fjöl­skyldu­fyr­ir­tækj­anna í flóknu neti útgerð­ar­innar.
FréttirSamherjaskjölin í 1001 nótt

Samherji sagður hafa boðið millj­arða króna til að ljúka málum í Namibíu

Samherji hefur boðið að gefa eftir yfir 2 millj­arða króna sem hald­lagðar voru í Namibíu, sem skaða­bætur til namibíska rík­is­ins í skiptum fyrir mála­lyktir. Namibísk yfir­völd tóku heldur fálega í til­boðið sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar. Lögmaður Wikborg Rein, sem starfar fyrir Samherja, stað­festir við­ræður en segir til­boðið ein­göngu hluta af einka­rétt­ar­legri deilu Samherja við yfir­völd, því sé ekki um að ræða við­ur­kenn­ingu á sekt í saka­máli.
FréttirSamherjaskjölin í 1001 nótt

Rannsókn Sam­herj­a­máls­ins lokið í Namibíu og rétt­ar­höld hefj­ast brátt

Werner Menges, blaða­maður The Namibian í Namibíu, segir að yfir­völd í Namibíu hafi lokið rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins. Tekist er á um meint van­hæfi dóm­ar­ans í mál­inu, Kobus Muller, vegna ummæla sem hann hefur látið falla um málið. Hann segir afar ólík­legt að réttað verði yfir starfs­mönnum Samherja eða fyr­ir­tækjum útgerð­ar­innar í Namibíu þar sem Ísland fram­selji ekki Íslend­inga til Namibíu.
FréttirSamherjaskjölin í 1001 nótt

Segir að Samherji ætti að hafa áhyggjur af sekt í Banda­ríkj­unum

Sænski blaða­mað­ur­inn Sven Bergman, sem fjallað hefur um fjölda mútu­mála sænskra fyr­ir­tækja erlendis, segir að illa hafi gengið að sækja stjórn­endur fyr­ir­tækj­anna til saka í Svíþjóð fyrir brotin. Alvar­leg­ustu afleið­ing­arnar hafi verið þegar banda­rísk yfir­völd tóku málin til rann­sóknar og sekt­uðu félögin um svim­andi upp­hæðir.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár