Enn eitt eldstöðvakerfið hefur rumskað – eða hvað?

Krýsuvík. Fagra­dals­fjall. Svarts­engi. Og nú Brenni­steins­fjöll. Snarpir jarð­skjálftar í Blá­fjöllum benda að mati Veð­ur­stof­unnar ekki til kviku­hreyf­inga heldur eigi þeir upp­tök í þekktu mis­gengi, þar sem orðið hafa risa­stórir skjálftar í gegnum tíð­ina.

Bláfjöll
Bláfjöll Kvika kann að mati eld­fjalla­fræð­ings að vera að safn­ast saman á tölu­verði dýpi undir Brenni­steins­fjöllum og nágrenni. Sér­fræð­ingar Veð­ur­stof­unnar segja þó engin merki um kviku­söfnun að finna á sínum mælum. Mynd: Shutterstock

Eitt af eld­stöðvakerfum Reykja­nesskaga, það sem kennt er við Brenni­steins­fjöll, hefur virkj­ast að mati eld­fjalla­fræð­ing­anna Þor­valdar Þórð­ar­sonar og Ármanns Hösk­ulds­sonar. Ef rétt reyn­ist er það fjórða kerfið á skag­anum sem er vaknað en gosið hefur þegar í tveimur kerfum þeirra þriggja sem segja má að hafi rumskað síð­ustu miss­eri.

Eld­fjalla­fræð­ing­arnir tveir telja að jarð­skjálfta­hrina í Blá­fjöllum fyrir nokkrum dögum, þar sem stærsti skjálft­inn mæld­ist 3,1, sé til marks um að Brenni­steins­fjalla­kerfið, sem liggur milli eld­stöðvakerfa sem kennd eru við Hengil­inn og Krýsuvík, hafi virkj­ast.  

 Skjálfta­hrinan í Blá­fjöllum taldi um 20 skjálfta sem urðu á milli Húsfells og Blá­fjalla. Enginn skjálfti hefur mælst frá því á mánu­dag, en mögu­legt er þó að virknin taki sig upp á ný, líkt og segir í sam­an­tekt Veð­ur­stofu Íslands, um hrin­una.

Skjálft­arnir urðu í svoköll­uðum Hús­fells­bruna, norð­ar­lega á mis­gengi sem hefur verið kallað Hval­hnúk­s­mis­gengið. Misgengi þetta er um 17 kíló­metra langt norður-suð­lægt snið­gengi og nær frá Hlíð­ar­vatni í suðri. Það er, að mati Veð­ur­stof­unnar, lík­lega ábyrgt fyrir stærstu skjálftum sem mælst hafa á Reykja­nesskag­anum, svoköll­uðum Brenni­steins­fjalla­skjálftum sem urðu árin 1968 og 1929 og voru um 6 að stærð.

Húsa­fells­bruni er það hraun sem næst rann Reykja­vík á síð­asta goss­keiði Reykja­nesskag­ans.

HrinanKortið sýnir skjálfta­virkni á Reykja­nesskaga frá því á föstu­dag­inn 26. jan­úar. Skjálfta­hrinan um helg­ina er sýnd á milli Blá­fjalla og Heið­merkur, grænir og bláir hringir.

Engar mælingar benda til kvikusöfnunar

„Það eru engar mæl­ingar sem benda til þess að kvika sé að safn­ast saman undir Brenni­steins­fjöllum“, segir Kristín Jóns­dóttir, deild­ar­stjóri á Veð­ur­stofu Íslands. „Skjálfta­virknin sem mæld­ist um helg­ina er ekki vegna kviku­hreyf­inga eins sést hefur í tengslum við jarð­hrær­ingar við Fagra­dals­fjall og norðan Grinda­víkur,“ er enn­fremur haft eftir henni í sam­an­tekt stofn­un­ar­innar.

„Ég held að þetta sé í raun að segja okkur að þessi kerfi eru komin í gang.“
Þor­valdur Þórð­ar­son,
eld­fjalla­fræð­ingur

Þar kemur fram að snið­geng­is­skjálftar verði vegna land­reks­spennu sem hleðst upp þegar Norður-Amer­íkuflek­inn og Evr­ópuflek­inn hreyfast fram­hjá hver öðrum. Þessi spenna losni reglu­lega í stærri skjálftum sem talið sé að ríði yfir skag­ann á um 50 ára fresti. „Má því segja að kom­inn sé tími á annan Brenni­steins­fjalla­skjálfta, óháð öðrum jarð­hrær­ingum,“ segir í sam­an­tekt­inni.

Ef kvika væri að safn­ast þarna saman ættu að sjást merki um land­ris í gögnum Veð­ur­stof­unnar líkt og sést hefur við Svarts­engi og Fagra­dals­fjall. „Við sjáum engin merki um slíkt,“ segir Kristín. „Það er hins vegar mik­il­vægt að vera með­vituð um að skjálftar sem eiga upp­tök á Hval­hnúk­s­mis­geng­inu eru stærstu skjálftar sem hafa riðið yfir Reykja­nesskag­ann“.

Myndu finnast um allt land

„Það eru engar mæl­ingar sem benda til þess að kvika sé að safn­ast saman undir Brenni­steins­fjöllum“
Kristín Jóns­dóttir,
deild­ar­stjóri hjá Veð­ur­stofu Íslands.

Verði jarð­skjálfti af stærð­inni 6 á Hval­hnúk­s­mis­geng­inu myndi hann finn­ast vel um mest allt landið og sér í lagi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Helsta hættan er tengd snörpum hreyf­ingum á inn­an­stokks­munum og mestu hreyf­ingar geta fært hús­gögn úr stað. „Þó er vert að geta þess að hreyf­ingar verða ekki þess eðlis að bygg­ingar lask­ist veru­lega, enda gera bygg­ing­ar­staðlar ráð fyrir slíkum hreyf­ingum,“ segir í sam­an­tekt Veð­ur­stof­unnar.

Fimm gos nú þegar

Eld­virkni­beltið, sem nær frá vest­asta odda Reykja­ness og að Hengl­inum og telur sex eld­stöðvakerfi, er að mati flestra vís­inda­manna komið í gang, með jarð­skjálftum og fimm eld­gosum síð­ustu þrjú árin.

Á þessu belti eru 6-7 staðir þar sem gæti gosið á að mati Þor­valdar Þórð­ar­sonar eld­fjalla­fræð­ings. Í við­tali við mbl.is sagði hann að eld­gosa­tíma­bil gæti staðið í 3-4 aldir og hver lota í 10-20 ár.

Hann sagði skjálft­ana í Blá­fjöllum gefa til kynna kviku­söfnun á tölu­verðu dýpi. Hann sagð­ist þó efast um að ein­hver umbrot væru vænt­an­leg á næst­unni. „Ég held að þetta sé í raun að segja okkur að þessi kerfi eru komin í gang. Og þau eru farin að und­ir­búa sig.“

Kristín hjá Veð­ur­stof­unni tekur ekki svo djúp í árinni líkt og að framan er rakið. Það sem Þor­valdur og Ármann hafi hins vegar báðir bent á er að þvi fyrr sem und­ir­bún­ingur for­varna hefst, þeim mun betra. Bæði Nesja­valla­virkjun og Hell­is­heið­ar­virkjun eru á svæðum sem jarð­hrær­ingar í Hengli og Brenni­steins­fjöllum gætu haft áhrif á. Huga verði að því að verja slíka inn­viði, sem og vatns­bólin í Heiðmörk.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár