Meira en 70 prósent Íslendinga með Costco kort

Rúmlega 70 prósent Íslendinga segjast vera með Costco kort. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR.

Rúmlega 70 prósent Íslendinga segjast vera með Costco kort. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR. Í niður­stöðunni kemur fram að af þeim sem eru með aðildar­kort hugðust 60 prósent endurnýja kortið þegar þar að kæmi en 35 prósent eru óákveðin og 6 prósent hyggjast ekki endurnýja aðildina.

Hlutfall kvenna og karla með Costco aðildar­kort er hnífjafnt eða 71 prósent. Eilítið fleiri karlar (61 prósent en konur (59 prósent) hyggjast þó endurnýja aðildina.

Íslendingar í aldurs­hópnum 30-49 ára eru hvað líklegastir til að vera með Costco aðildar­kort eða 80 prósent, saman­borið við 60 prósent þeirra í elsta aldurs­hópnum (68 ára og eldri) og 58 prósent í yngsta aldurs­hópnum (18-29 ára). Íslendingar í aldurs­hópnum 30-49 ára eru jafnframt líklegri en aðrir til að endurnýja aðildina.

Eins og gefur að skilja eru töluvert fleiri íbúar Höfuðborga­svæðisins (77 prósent) með Costco aðildar­kort heldur en íbúar lands­byggðarinnar (60 prósent). Hlutfall þeirra sem ætla að endurnýja aðildina er þó nokkuð jafnt eða 60 prósent íbúa Höfuð­borgar­svæðisins og 59 prósent íbúa lands­byggðarinnar.

Stuðnings­fólk Miðflokksins (81 prósent) reyndist líklegast til að vera með Costco aðildar­kort en stuðnings­fólk Framsóknar­flokks (59 prósent) og Vinstri grænna (60 prósent) reyndist ólíklegra en stuðningsfók annarra flokka til að vera með Costco aðildar­kort. Jafnframt er stuðnings­fólk Framsóknar­flokksins (47 prósent) Vinstri grænna (54 prósent) ólíklegra en stuðnings­fólk annarra flokka til að endurnýja aðildina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár