Lítill sem enginn þjónustuafgangur við útlönd

Hrun í ferða­þjónustu og farþega­flutningum hefur leitt til þess að útflutningur þjónustu er nær sá sami og innflutn­ingur hennar í fyrsta skipti í 12 ár.

Minna var um erlenda ferðamenn hér á landinu í vor.
Minna var um erlenda ferða­menn hér á land­inu í vor. Mynd: Bára Huld Beck

Afgangur af þjónustu­jöfnuði Íslands við önnur lönd dróst saman um 93 prósent á öðrum ársfjórðungi þessa árs miðað við árið á undan. Hann nemur nú 3,7 milljörðum króna og hefur ekki verið minni síðan í ársbyrjun 2008. Þetta kemur fram í bráðabirgðartölum Hagstofu.

Breytingin er tilkomin vegna gríðar­mikils samdráttar á útflutningi þjónustu á öðrum ársfjórðungi, en hann minnkaði um nær 100 milljarða króna miðað við sama tímabil í fyrra. Einnig var nokkur samdráttur á innflutningi þjónustu á sama tíma, en hann nam þó einungis 50 milljörðum króna.

Nær allan samdráttinn í þjónustu­útflutningi má rekja til hruns í ferða­þjónustu og farþega­flutningum. Alls dróst fram­leiðslan í ferða­þjónustunni við útlönd um tæpa 75 milljarða króna, á meðan farþega­flutningar til landsins drógust saman að andvirði 30 milljarða króna. Sömuleiðis má að mestu leyti rekja samdráttinn í þjónustu­innflutningi til fækkunar íslenskra ferða­manna erlendis.

Mesta fækkunin frá Bandaríkjunum

Mest fækkaði ferða­mönnum frá Banda­ríkjunum, en þjónustu­útflutningur þangað dróst saman um rúma 10 milljarða króna. Þar á eftir kemur Kanada, þar sem útflutningurinn dróst saman um 1,4 milljarða og svo Bretland, þar sem samdrátturinn nam 880 milljónum á öðrum ársfjórðungi.

Hlutfalls­lega fækkaði þó ferða­mönnum mest frá Evrópu­löndunum þar sem strangt útgöngu­bann var í gildi á þessum tíma, eða Spáni, Ítalíu og Frakkland, en samdrátturinn í þjónustu­útflutningi til þeirra landa nam allt að 90 prósentum.

Líkt og myndin hér að ofan sýnir hefur þjónustu­jöfnuður Íslands við önnur lönd verið jákvæður allt frá árinu 2008, sem þýðir að við höfum flutt meiri þjónustu út úr landinu heldur en inn í það. Þar hefur uppgangur ferða­þjónustunnar vegið mest, líkt og sést í stórum árstíða­sveiflum.

Á öðrum ársfjórðungi nam afgangurinn af þjónustu­jöfnuðinum svo 3,7 milljörðum, en það eru einungis þrjú prósent af hámarks­afgangi landsins sem náðist á þriðja fjórðungi ársins 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár