Biden sagður tilkynna um framboð til forseta á næstu tíu dögum

Joe Biden, vara­forseti Banda­ríkjanna, mun tilkynna hvort hann fer í framboð til forseta eða ekki á næstu tíu dögum. Þetta segir CBS frétta­stofan, sem hefur eftir heimildar­mönnum að líklegra sé en ekki að hann fari fram.

CBS hefur rætt við þrjá heimildar­menn nákomna Biden. Fjölskyldu­ástæður eru sagðar helsta hindrunin fyrir framboði hans.

Jafnvel þótt hann verði búinn að tilkynna um framboð er Biden sagður ætla að sleppa fyrstu kapp­ræðunum meðal fram­bjóðenda demókrata, sem fara fram 13. október. Biden þurfi tíma til að setja saman teymi í kringum kosninga­baráttuna og safna peningum.

Nýlegar skoðana­kannanir hafa sýnt að Biden gæti verið verðugur keppinautur Hillary Clinton, sem er enn vinsælasti fram­bjóðandinn. Könnun sem var gerð fyrir Bloomberg sýndi að 25 prósent demókrata myndu styðja vara­forsetann, en 33 prósent styðja Clinton og 24 prósent Bernie Sanders.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár