Ragnar Þór ætlar að bjóða sig fram til embættis forseta Alþýðusambands Íslands

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR tilkynnti starfs­fólki félagsins á fundi í morgun að hann ætli að bjóða sig fram til forseta Alþýðu­sambands Íslands á þingi sambandsins, sem fram fer dagana 10.-12. október.

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR ætlar að bjóða sig fram til forseta Alþýðu­sambands Íslands á þingi sambandsins sem fram fer í lok október. Ragnar Þór kynnti starfs­fólki VR þessa ákvörðun sína á fundi í morgun og var áður búinn að kynna stjórn VR um framboð sitt í gærkvöldi. Hann stað­festir þetta svo sjálfur í samtali við Kjarnann.

Ragnar Þór sagði frá því í upphafi vikunnar að hann ætlaði að tilkynna hvort hann færi fram eða ekki í dag. Síðustu daga hefur hann átt fundi með forystu­fólki úr aðildar­félögum innan Alþýðu­sambandsins, til þess að kanna hvort stuðningur við þær hugmyndir sem hann hefur um framtíð sambandsins og áherslu­breytingar í störfum þess næðu út fyrir þann hóp stéttar­félaga sem staðið hefðu „dálítið þétt saman“ og átti hann þar við stéttar­félög í Grindavík, Akranesi og svo Eflingu stéttar­félag.

„Ef að vilj­inn til breyt­inga nær til dæmis inn í iðn­að­ar­manna­sam­fé­lagið og raun­veru­legur vilji er til að rífa þetta upp og gera þetta að því afli sem þetta apparat á að vera, þá er það mjög spenn­andi verk­efni að taka að sér að leiða,“ sagði Ragnar Þór í sam­tali við Kjarn­ann á þriðjudag.

Mun leiða gerð kjarasamninga í haust

Ragnar Þór, sem hefur verið formaður VR frá 2017, stað­festir í samtali við Kjarnann að hann ætli að halda áfram að leiða stjórn VR þó að hann næði kjöri sem forseti Alþýðu­sambandsins og segir að hann muni sinna þeim verkefnum sem lúta að kjara­samningum sem formaður stjórnar og formaður samninga­nefndar félagsins.

Hann mun hins vegar eftirláta öðrum að taka við sem starfandi formaður VR ef svo fer að hann nái kjöri og ekki sækjast eftir endur­kjöri sem formaður félagsins, en kjör­tímabil Ragnars Þórs sem formanns VR rennur sitt skeið snemma á næsta ári.

Ragnar Þór er 49 ára gamall. Áður en hann varð formaður VR hafði hann setið í stjórn VR frá 2009 til 2017. Hann kom að stofnun Hagsmuna­samtaka heimilana árið 2009 og sat þar í stjórn, auk þess sem hann sat í stjórn Borgara­hreyfingarinnar þegar hún bauð fram til Alþingis og fór svo sjálfur í framboð til Alþingis fyrir hönd stjórnmála­aflsins Dögunar árið 2016.

Sá eini sem hefur tilkynnt um forsetaframboð

Fyrir daginn í dag hafði enginn annar tilkynnt um framboð til forseta ASÍ, en undan­farnar viku hafa nokkrir verka­lýðs­leið­togar úti­lokað að þeir gefi kost á sér. Þeirra á meðal er starf­andi for­seti ASÍ, Krist­ján Þórður Snæ­bjarn­ar­son for­maður Raf­iðn­að­ar­sam­bands­ins, en hann gaf það út í upp­hafi síð­ustu viku að hann myndi ekki sækj­ast eftir emb­ætt­inu.

Áður höfðu þau Sól­veig Anna Jóns­dóttir for­maður Efl­ingar og Vil­hjálmur Birg­is­son for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins og VLFA úti­lokað fram­boð til for­seta ASÍ í samtölum við fjölmiðla.

Nýr forseti verður kjörinn á þingi ASÍ sem fram fer dagana 10.-12. október á Hótel Nordica í Reykjavík.

Drífa hætti vegna óbærilegra átaka

Drífa Snædal sagði af sér embætti forseta 10. ágúst og sagði hún samskipti við ýmsa kjörna fulltrúa innan sambandsins og sú blokka­myndun sem þar hefði átt sér stað gera sér ókleift að starfa áfram sem forseti.

Í yfir­lýsingu sem hún birti er hún tilkynnti um brott­hvarf sitt gagnrýndi hún forystu bæði Eflingar og VR og sagðist hafa þurft að „bregð­ast við linnu­lausri, en óljósri gagn­rýni for­manns VR“ á sín störf.

Fréttin hefur verið uppfærð eftir að Kjarninn náði tali af Ragnari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár