Ragnar Þór ætlar í framboð til forseta ASÍ ef hann fær breiðan stuðning aðildarfélaga

Formaður VR ætlar að tilkynna á fimmtudag hvort hann bjóði sig fram til forseta ASÍ eða ekki. Hann segist vilja breiðan stuðning aðildar­félaga við það sem hann segir nauðsynlegar breytingar á Alþýðu­sambandinu.

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR
Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR Mynd: Bára Huld Beck

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR er þessa dagana að ræða við forystu­fólk í aðildar­félögum Alþýðu­sambandsins og kanna hvort hann hafi stuðning þeirra til þess að leiða sambandið og ákveðnar breytingar innan þess. Hann segir að ákvörðun sín um framboð til forseta velti á viðbrögðunum, og hyggst segja af eða á um framboð á fimmtudaginn.

„Ef það er breiður vilji innan aðildar­félaganna sem nær þá út fyrir þau félög sem hafa verið dálítið þétt saman; Grindavík, Akranes, Eflingu, VR, LÍV og fleiri, og ef að viljinn til breytinga nær til dæmis inn í iðnaðar­manna­samfélagið og raun­verulegur vilji er til að rífa þetta upp og gera þetta að því afli sem þetta apparat á að vera, þá er það mjög spennandi verkefni að taka að sér að leiða,“ segir Ragnar Þór í samtali við Kjarnann.

Hann ræddi þessi mál einnig í viðtali við Gunnar Smára Egilsson í umræðu­þættinum Rauða borðinu, sem birtist í gær.

„Ef fólk er virkilega á því að efla þetta, laga það sem þarf að laga, efla kjarna­starfsemi Alþýðu­sambandsins, þá er þetta verkefni sem ég hef mikinn áhuga á, en ef ekki nær það bara ekkert lengra,“ segir Ragnar Þór, sem segist ekki ætla að dvelja lengi við það að taka ákvörðun sína.

Hann segir að ef svo fari að hann fái ekki þann breiða stuðning sem hann óskar sér innan aðildar­samtakanna hafi hann „kannski takmarkaðan áhuga á að eyða meiri kröftum í Alþýðu­sambandið“ og kjósi þá heldur að halda áfram því starfi sem unnið er á vettvangi VR og Lands­samtaka verslunar­manna.

Í samtali sínu við Gunnar Smára í gær sagði Ragnar Þór að það væri raunhæfur möguleiki að VR myndi segja skilið við Alþýðu­sambandið og sagði hann að ef til vill væri þeim 175 milljónum króna sem renna frá verslunar­fólki í sjóði ASÍ á ári betur varið í að styrkja starfsemi VR.

Ragnar Þór segir við Kjarnann að hann telji Alþýðu­sambandið hafa verið með „óskýrt umboð“, hinn almenni félags­maður hafi verið ósáttur með Alþýðu­sambandið og stefnu þess.

„Ef þú hefur ekki fólkið með þér hefur þú ekki sterkt umboð og samnings­staðan er eftir því,“ segir Ragnar Þór og bætir því við að sá mikli klofningur sem verið hafi innan aðildar­félaga ASÍ hafi takmarkað umboð og styrk ASÍ.

„Það þarf eitthvað verulega mikið að breytast. Þetta snýst ekki um neina titla eða stóla, þetta snýst um hvort Alþýðu­sambandið geti verið þetta afl sem það þarf að vera, eða hvort maður á eyða orku sinni í eitthvað annað,“ segir Ragnar Þór.

Ekkert framboð komið fram

Enginn hefur enn tilkynnt um framboð til forseta ASÍ en nokkrir verkalýðs­leiðtogar hafa þegar útilokað það. Þeirra á meðal er starfandi forseti ASÍ, Kristján Þórður Snæbjarnarson formaður Rafiðnaðar­sambandsins, en hann gaf það út í upphafi síðustu viku að hann myndi ekki sækjast eftir embættinu.

Áður höfðu þau Sólveig Anna Jóns­dóttir formaður Eflingar og Vilhjálmur Birgisson formaður Starfs­greina­sambandsins og VLFA útilokað framboð til forseta ASÍ, en eftir­maður Drífu Snædal verður kjörinn þingi sambandsins sem fram fer í október.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár