„Því er auðsvarað, það yrði klárt lögbrot“

Forstjóri Lands­virkjunar fékk spurningu úr sal frá formanni Samtaka fyrir­tækja í sjávar­útvegi um hvort ekki kæmi til greina að niður­greiða orku­kostnað fyrir­tækja og heimila.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar. Mynd: Birgir Þór

Jens Garðar Helgason, formaður Samtaka fyrir­tækja í sjávar­útvegi (SFS) og vara­formaður Samtaka atvinnu­lífsins (SA), beindi þeirri spurningu til stjórn­enda Lands­virkjunar, á ársfundi fyrir­tækisins í dag, hvort ekki kæmi til greina að niður­greiða orkuverð til heimila og fyrir­tækja í landinu, í stað þess að greiða arð til eigandans, íslenska ríkisins. (Sjá myndband, meðfylgjandi, 2:08.)

Hörður Arnarson, forstjóri Lands­virkjunar, var snöggur að svara; „Því er auðsvarað, það yrði klárt lögbrot“ sagði Hörður, og benti á að lög væru alveg skýr með að það væri óheimilt að selja raforkuna undir kostnaðar­verði. „Jafnvel þó við vildum það - og ég ætla ekki að segja að við viljum það - þá væri það bannað,“ sagði Hörður.

Rekstur Lands­virkjunar hefur smátt og smátt verið að styrkjast og arðsemi eigin fjár fyrir­tækisins, samhliða niður­greiðslu skulda, verið að batna. Á næstu árum er horft til þess að arðgreiðslur Lands­virkjunar til ríkisins geti aukist mikið, en fjallað var um þessa stöðu í ítarlegri grein Ketils Sigurjóns­sonar, lögfræðings og sérfræðings í orkumálum, á vef Kjarnans í gær

.Í lok árs í fyrra námu eignir Lands­virkjunar 4,3 milljörðum Bandaríkja­dala, eða um 450 milljörðum íslenskra króna.

Eiginfjár­hlutfall fyrir­tækisins var ríflega 45,5 prósent og námu heildar rekstrar­tekjur 420 milljónum Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 50 milljörðum króna. 


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár