Íslenskt nýsköpunarfyrirtæki fær 419 milljónir króna í fjármögnun frá Kísildalnum

Gagna­stjórnunar­fyrirtækið Avo, sem stofnað var af tveimur fyrrum starfs­mönnum Plain Vanilla, fékk stóra fjár­mögnun frá fjár­festinga­sjóðum úr Kísil­dalnum.

Stofnendur Avo, Stefanía Ólafsdóttir og Sölvi Logason.
Stofn­endur Avo, Stefanía Ólafs­dóttir og Sölvi Logason. Mynd: Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir

Sprota­fyrirtækið Avo, sem sérhæfir sig í gagna­stjórnun fyrir­tækja, hefur tryggt sér fjár­mögnun að andvirði 419 milljóna króna frá fjárfesta­hópi úr Kísil­dalnum. Þetta kemur fram í frétta­tilkynningu frá fyrir­tækinu fyrr í dag.

Samkvæmt tilkynningunni er fjárfesta­hópurinn leiddur af bandaríska vísi­sjóðnum GGV Capital, sem sérhæfir sig í fjár­festingum í nýsköpun á ýmsum þróunar­stigum fyrir­tækja og stýrir um sex milljörðum dala, sem samsvarar 840 milljörðum króna.

Sjóðirnir Heavybit og Y combinator tóku einnig þátt í fjár­festingunni. Heavybit sérhæfir sig í að fjárfesta í forritara­lausnum, en Y Combinator er nýsköpunar­hraðall sem hefur fjárfest í Airbnb, Stripe og Dropbox.

Einnig tóku íslensku fjár­festinga­sjóðirnir Brunnur og Crowberry þátt í fjármögnunni, auk annarra fjárfesta úr Kísil­dalnum.

Avo er sprota­fyrirtæki sem var stofnað árið 2018 af Stefaníu Bjarneyju Ólafs­dóttur og Sölva Logasyni, en þau unnu bæði hjá íslenska tölvuleikja­fyrirtækinu Plain Vanilla Games við gerð leikjarins QuizUp. Fyrir­tækið sérhæfir sig í skipuleggingu, skráningu og stjórnun gagna fyrir fyrirtæki. Samkvæmt tilkynningunni samþættist AVO við önnur greiningartól sem fyrirtæki eru þegar með í notkun, „svo að teymi geti gefið vörur sínar hraðar út án þess að fórna gagna­gæðunum.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár