Nýr forstjóri Menntamálastofnunar ráðinn og tilkynnt um að stofnunin verði lögð niður

Þórdís Jóna Sig­urð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stýra Hjalla­stefn­unnar, hefur verið ráðin for­stjóri Mennta­mála­stofn­unar. Til stendur að leggja stofn­un­ina niður og stofna aðra. Þórdís mun stýra nýju stofn­un­inni.

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barna­mála­ráð­herra, hefur til­kynnt að Þórdís Jóna Sig­urð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stýru Hjalla­stefn­unnar, sem nýjan for­stjóra Mennta­mála­stofn­unar. Samhliða hefur verið til­kynnt um viða­miklar breyt­ingar sem ráð­ist verður í á mennta­kerf­inu, sem felur meðal ann­ars í sér að Mennta­mála­stofnun verður lögð niður.

Í stað hennar verður ný stofnun sett á lagg­irnar. Í til­kynn­ingu á vef ráðu­neyt­is­ins segir að hlut­verk nýrrar stofn­unar sé að tryggja að „tryggja gæði mennt­unar og aðgengi allra nem­enda, for­eldra og starfs­fólks skóla að sam­þættri, heild­stæðri skóla­þjón­ustu á leik-, grunn- og fram­halds­skóla­stigi“.

Þórdís mun leiða þá nýju stofnun sem sett verður á fót eftir að Mennta­mála­stofnun verður lögð niður og ráðn­ing hennar gildir til fimm ára. All sóttu 14 um starf for­stjóra Mennta­mála­stofn­unar.

Þórdís sótt­ist eftir að leiða lista Við­reisnar í Reykja­vík­ur­borg fyrir síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar en náði ekki því mark­miði. Þess í stað var hún í þriðja sæti fram­boðs­list­ans. Stundin greindi frá því í síð­asta mán­uði að Þórdís hafi verið keypt út úr Hjalla­stefn­unni, en hún átti hluta­bréf í fyr­ir­tæk­inu, eftir að hún lauk þar störfum fyrir 55 millj­ónir króna.

Ætla að kynna viðamiklar breytingar í hádeginu

Í til­kynn­ingu mennta- og barna­mála­ráðu­neyt­is­ins segir að í dag verði kynntar viða­miklar breyt­ingar sem ráð­ist verður í á mennta­kerf­inu. Þær verða kynntar í hádeg­inu í dag á blaða­manna­fundi. Auk nið­ur­lagn­ingar mennta­stofn­unar og nýrri stofnun í hennar stað fela þær þó meðal ann­ars í sér, sam­kvæmt til­kynn­ingu, að skóla­þjón­usta verði styrkt þvert á skóla­stig með nýjum heild­ar­lögum um skóla­þjón­ustu. „Hlutverk nýrrar stofn­unar er að tryggja gæði mennt­unar og aðgengi allra nem­enda, for­eldra og starfs­fólks skóla að sam­þættri, heild­stæðri skóla­þjón­ustu á leik-, grunn- og fram­halds­skóla­stigi.“

Þórdís Jóna er með B.A.-próf í stjórn­mála­fræði og M.A.-próf í félags­fræði frá Háskóla Íslands og MBA-próf frá Vlerick Business School. Þá hefur hún einnig lokið leið­toga­námi og námi í inn­leið­ingu stefnu­mót­unar frá Harvard Business School.

Í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins segir að hún hafi umfangs­mikla reynslu af fjöl­breyttum umbreyt­ing­ar­verk­efnum innan mennta­kerf­is­ins og víðar og starfað við góðan orðstír. „Þar má nefna upp­bygg­ingu MBA-náms og stjórn­enda­skóla Háskól­ans í Reykja­vík; end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála, stjórn­unar og skipu­lags í Hjalla­stefn­unni; stefnu­mótun, sam­ein­ingu og end­ur­skipu­lagn­ingu fjölda fyr­ir­tækja, íslenskra sem erlendra; auk aðkomu að end­ur­skipu­lagn­ingu, mótun og inn­leið­ingu stefnu hjá fjölda stofn­ana.

Á starfs­ferli sínum hefur Þórdís Jóna komið að verk­efnum úr ólíkum áttum m.a. sem fram­kvæmda­stjóri, for­stjóri, stjórn­ar­maður og stjórn­ar­for­maður. Víðtæk og umfangs­mikil reynsla Þórdísar mun nýt­ast einkar vel í þeim verk­efnum sem framundan eru við mótun nýrrar stofn­unar sem ætlað er að styðja heild­stætt við skóla­þróun og far­sæld barna til fram­tíðar.“

Engin heildarlöggjöf til staðar

Í til­kynn­ing­unni er haft eftir Ásmundi Einari að engin heild­ar­lög­gjöf sé til staðar um skóla­þjón­ustu fyrir leik-, grunn- og fram­halds­skóla og að engin mið­læg stofnun sé með skil­greint hlut­verk að fram­kvæma og sam­hæfa þessa þjón­ustu. „Aðgengi að þjón­ustu og ráð­gjöf er mis­mun­andi, bæði milli og innan skóla­stiga og sveit­ar­fé­laga, sem leiðir til ójafn­ræðis,“ segir Ásmundur. „Við þurfum að sam­hæfa kerfin til að tryggja yfir­sýn, skil­virkni og gæði þjón­ust­unnar, svo sem þegar nem­endur flytj­ast á milli skóla eða fær­ast milli skóla­stiga. Meiri ráð­gjöf við starfs­fólk skóla og stuðn­ingur við skóla­starfið leiðir til hrað­ari og skil­virk­ari úrræða fyrir börn og ung­menni. Allt sem við gerum á að miða að far­sæld þeirra.“

Markmið nýrra laga um skóla­þjón­ustu verði að tryggja öllum skólum fag­legt bak­land í sínum fjöl­breyttu verk­efnum ásamt því að efla þver­fag­lega sam­vinnu milli skóla-, félags- og heil­brigð­is­þjón­ustu í þágu nem­enda.

Ný stofnun muni taka við hluta verk­efna Mennta­mála­stofn­unar en eft­ir­lit með skóla­starfi verði aðgreint frá þjón­ustu og ráð­gjöf og fær­ist til mennta- og barna­mála­ráðu­neyt­is­ins fyrst um sinn.

Áformin verða kynnt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda seinna í dag. Í kjöl­farið er fyr­ir­hugað að eiga víð­tækt sam­ráð við hag­hafa um verk­efni nýrrar stofn­unar og útfærslu skóla­þjón­ustu til fram­tíðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár