United Silicon veitt heimild til greiðslustöðvunar til 4. desember

Áhersla er lögð á að koma starfseminni af stað á nýjan leik, segir í tilkynningu.

Héraðs­dómur Reykjaness veitti í gær United Silicon, sem rekið hefur kísilmálmversksmiðju í Helguvík, fram­lengingu á heimild til greiðslu­stöðvunar til þriggja mánaða, eða til 4. desember. Helgi Jóhannesson hrl. hefur verið ráðinn aðstoðar­maður í greiðslu­stöðvun og hefur Héraðs­dómur Reykjaness staðfest þá ráðningu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

„Fram­lengingunni er ætlað að gera fyrir­tækinu kleift að endur­skipuleggja rekstur félagsins og hrinda í framkvæmd endurbóta­áætlun, sem byggð er á ráðleggingum utan­aðkomandi sérfræðinga, með það að markmiði að gera fyrir­tækið fjár­haglega og tæknilega rekstrar­hæft til lengri tíma litið. Stjórn félagsins vinnur nú hörðum höndum að endur­skipulagningu rekstrar félagsins í samvinnu við kröfuhafa þess. Fjárhags­erfiðleikar félagsins eru fyrst og fremst afleiðing rekstrar­erfiðleika í verksmiðju félagsins sem rekja má til endur­tekinna bilana í búnaði og valdið hafa félaginu miklu tjóni. Á greiðslu­stöðvunar­tíma verður því líka unnið að frekari greiningum á tækni­legum úrlausnar­efnum, áætlunum um úrbætur og nauðsyn­legum endur­bótum,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir að markaðs­verð á kísil­málmi hafi farið hækkandi og eftir­spurnin hafi enn fremur aukist jafnt og þétt. Framtíðar­horfur í rekstrinum eru sagðar góðar, ef það takist að fjármagna nauðsynlegar endur­bætur á starfseminni, en eins og kunnugt er hefur Umhverfis­stofnun látið stöðva starfsemina, ekki síst vegna mengunar í nærumhverfi sem hefur haft slæmt áhrif á heilsu fólks í nærliggjandi hverfum. „Stjórn félagsins tekur alvarlega þá miklu ábyrgð sem fylgir því að reka starfsemi sem þessa og vill gera það í góðri sátt við nærsamfélagið og eftirlits­aðila og í samræmi við ákvæði laga og starfs­leyfis. Stjórn félagsins mun á næstu mánuðum vinna að endur­skipulagningu rekstrar til að tryggja rekstrar­hæfni félagsins til frambúðar. Í því samhengi leggur stjórnin áherslu á að tryggja hagsmuni kröfuhafa félagsins, starfs­fólks þess og hag sveitar­félagsins af tekjum af rekstri félagsins. Hluti þess verkefnis er að tryggja félaginu fjármagn til að ráðast í allar nauðsynlegar úrbætur til að bæta rekstur verksmiðju félagsins. Áður hafði United Silicon í svörum til UST veitt upplýsingar um fjölmörg úrbóta­verkefni sem ætlunin er að ráðast í á greiðslu­stöðvunar­tíma. Ákvörðun UST kallar á enn frekari greiningu á mögulegum úrbótum og tímasetta áætlun um þær. Multiconcult er norsk ráðgjafar­verkfræði­stofa í fremstu röð á Norður­löndum og hefur unnið með félaginu frá því síðasta vor og mun halda áfram að vera lykil­ráðgjafi félagsins í endurbóta­ferli næstu mánaða. Multiconsult fékk Norsku loft­gæða­rannsókna­stofnunina (NILU) til liðs til að rannsaka og greina útblástur frá verksmiðjunni og mun það starf halda áfram,“ segir í tilkynningu félagsins.

Stjórn félagsins vinnur auk þess að því að styrkja innviði félagsins og gerir ekki ráð fyrir að koma þurfi til uppsagna starfs­fólks. Hluti þess mun vinna að endur­bótum á vinnu­staðnum auk þess sem kapp verður lagt á að nota næstu þrjá mánuði til að styrkja starfs­fólk í störfum sínum með því að auka þjálfun og fræðslu á meðan hefð­bundin verkefni liggja niðri. Mannauður félagsins er lykil­atriði til að tryggja framtíðar­rekstur verksmiðjunnar.

Karen Kjartans­dóttir hefur verið fengin til að sinna hlutverki talsmanns fyrir­tækisins næstu mánuði, að því er segir í tilkynningu. Þá hefur stjórnin fengið Kristin Bjarnason hrl. til ráðgjafar fyrir félagið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár