„Airwaves markar endalokin“

Gunnar Ragn­ars­son, for­sprakki Grísalappalísu, segir að þrátt fyrir gríð­ar­legar vin­sældir rokksveit­ar­innar hafi með­limir hennar aldrei grætt á því fjár­hags­lega að spila á tón­list­ar­há­tíð­inni Iceland Airwaves. Hljóm­sveitin er nú að hætta og hann lýsir blendnum til­finn­ingum gagn­vart hátíð­inni.

Gunnar Ragn­ars­son er for­sprakki Grísalappalísu sem hefur verið ein kröft­ug­asta rokk­sveit lands­ins á síð­ustu árum. Til­vist­ar­kreppa og ang­ist ungra karl­manna hefur verið sveit­inni hug­leikin og fram­sækin texta­smíð end­ur­spegl­ast í eld­fimri og óráðs­kenndri hljóð­færa­spilun. 

Árið 2004 fór hann fyrst á Airwaves, þá svo ungur að hann þurfti að fara í fylgd móður sinnar. „Mig lang­aði svo mikið að sjá The Shins, og fleiri sveitir, þannig að mamma mín þurfti að fá sér­stakt leyfi frá skrif­stof­unni og fara með mér á tón­leika. Það var svo spenn­andi að sjá allt þetta nýjasta indí-dót sem kom að utan,“ segir Gunnar og bætir því við að það sé liðin tíð að hann verði svo spenntur fyrir því hverjir eru að spila á Airwaves. Hann sé hins vegar þakk­látur fyrir þau tæki­færi og þá reynslu sem hann hefur fengið í gegnum þátt­töku í Airwaves, en seg­ist vera óviss um þá stefnu sem hún hafi tekið. 

Ferillinn tók stökk eftir Airwaves

Áður var Gunnar í Jak­obínurínu, en sú sveit vann Mús­íktil­raunir árið 2005. Á þeim tíma voru með­limir sveit­ar­innar allir í efstu bekkjum grunn­skóla, ýmist í 9. eða 10. bekk, og óvissir um hvað fram­tíðin bæri í skauti sér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár