Honda innkallar 4,8 milljónir bíla vegna galla í loftpúðum

Japanski bíla­fram­leiðandinn Honda ætlar að innkalla alls 4,8 milljónir bifreiða vegna galla í loftpúðum sem fyrir­tækið Takata fram­leiðir. Honda ætlar að skipta út loft­púðunum í öllum bifreiðunum en rann­sóknir hafa sýnt að loftpúða­kerfi Takata séu gölluð. Þetta var tilkynnt í morgun.

Tilkynning Honda kom daginn eftir að japönsku bíla­fram­leiðendurnir Toyota og Nissan upplýstu saman að þeir ætli sér að innkalla samanlagt 6,5 milljónir bifreiða vegna galla í loftpúðum sem þeir höfðu keypt af undir­verktakanum Takata.

Grunur er um að hinir gölluðu loftpúðar hafi valdið að minnsta kosti sex dauðsföllum. Flest þeirra hafa verið í bifreiðum frá Honda, sem er þriðji stærsti bíla­fram­leiðandi Japan.

Toyota ætlar að kanna loftpúða í alls 35 mismun­andi undir­tegundum Toyota. Nissan ætlar að innkalla margar undir­tegundir sínar sem fram­leiddar voru á árunum 2004 til 2008.

Alls hafa um 21 milljón bifreiðar út um allan heim verið innkallaðar frá árinu 2008 vegna mögulegra galla í loftpúðum frá Takata.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár