Áfall fyrir japanskan bílaiðnað - Toyota og Nissan innkalla 6,5 milljónir bíla

Japönsku bíla­fram­leiðendurnir Toyota og Nissan þurfa að innkalla 6,5 milljónir bíla vegna galla í loftpúðum í bílunum, sem fyrir­tækið Takata fram­leiðir. Gallar í fram­leiðslu á loftpúðum er ástæðan.

Toyota þarf að innkalla tæplega fimm milljónir bíla og Nissan 6,5 milljónir. Í tilkynningum frá bíla­fram­leiðendunum segir að þetta sér gert eftir að rann­sóknir sýndu að loftpúða­kerfi frá Takata hefðu verið gölluð, en engin slys hafa verið rakin til þessara kerfa.

Samkvæmt frásögn breska ríkis­útvarpsins BBC, sem greindi frá málinu dag, hafa um tíu bíla­fram­leiðendur á heimsvísu innkallað 25 milljónir bíla frá árinu 2008, vegna galla í loftpúða­kerfum frá Takata.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár