Tugir látnir eftir árásir í París - Sprengingar og árásir nærri Stade de France

Nokkrir einstak­lingar eru sagðir hafa staðið fyrir árásum með skot­vopnum og sprengjum nærri Stade de France í París. Tugir eru látnir. Upplýsingar eru nú að berast af vettvangi.

Að minnsta kosti 40 eru látn­ir, samkvæmt fréttum The Guardian, eft­ir skotárás­ir og sprengju­til­ræði í Par­ís í kvöld. Skotárás­ir voru gerðar á að minnsta kosti tveim­ur stöðum og eins sprungu sprengj­ur skammt frá þjóðar­leik­vangi Frakka, Stade de France, í út­hverfi Par­ís­ar, þar sem lands­leik­ur Frakk­lands og Þýska­lands fór fram.

Franço­is Hollande Frakk­lands­forseti, var á leikn­um en yf­ir­gaf leik­vang­inn í lög­reglu­fylgd til þess að taka þátt í neyðar­fundi í inn­an­rík­is­ráðuneyt­inu.

Tala látinn hækkar stöðugt, og lögreglu­aðgerðir eru í gangi á þeim tíma sem þetta er skrifað. Meðal annars eru yfir 100 gíslar sagðir hafa verið teknir í Bataclan leik­húsinu.

Hollande lýsti yfir neyðar­ástandi í öllu Frakk­landi á ellefta tímanum og hersveitir hafa verið kallaðar út vegna árásanna í París. Landa­mærum Frakk­lands hefur verið lokað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár