Segir endurbata í ferðaþjónustu vera hröðustu leiðina úr kreppunni

Fyrr­verandi seðla­bankastjóri telur að aukin virkni ferða­þjónustunnar sé fljót­virkasta leiðin til að ná viðsnúningi í hagkerfinu.

Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri
Már Guð­munds­son, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri Mynd: Birgir Þór Harðarson

Már Guðmundsson telur að aukin virkni ferða­þjónustunnar verði hraðasta leiðin til efnahags­legs viðsnúnings að heims­faraldrinum loknum, þar sem ónýttir framleiðslu­þættir séu til staðar í greininni. Í grein sinni leggur hann áherslu á að heildstæð sýn sé mikilvæg fyrir verðmæta­sköpun í hagkerfinu, þar sem margir samverk­andi þættir komi saman.

Þetta skrifar Már í nýjasta tölublaði Vísbendingar, sem var gefið út í gær. Þar veltir hann upp mikilvægi útflutnings­tekna í verðmæta­sköpun samkvæmt ýmsum hagfræði­kenningum, þar sem framlag mismun­andi atvinnu­greina til þjóðar­búsins hafi verið rætt töluvert á undan­förnum misserum. Þar hafi oft verið gerður greinar­munur á því hvort atvinnugreinnar afli gjald­eyris eða ekki.

Heildstæð sýn mikilvæg

Í því tilliti nefnir hann kaupauðgis­stefnu (e. mercantilism) sem hvetur til þess að ríki auðgist með því að auka útflutning og draga úr innflutningi. Samkvæmt Má samrýmist sú stefna þó ekki nútíma­hagfræði, þar sem fram­leiðsla fyrir innan­landsmarkað er hluti af verðmæta­sköpuninni með alveg sama hætti og útflutningur eru.

Már bætir einnig að heildstæð sýn sé mikilvæg til að skilja verðmæta­sköpun í samfélaginu, til að mynda innviðir á vegum hins opinbera, menntun og greiðslu­miðlun frá fjármála­kerfinu.

Hægt er að gerast áskrifandi að Vísbendingu með því að smella hér.

Uppfært kl: 16:19. Orðalagi fréttarinnar hefur verið breytt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár