Uppfæra rýmingaráætlanir vegna mögulegs Kötlugoss

Áætlanir um rýmingu vegna mögulegs Kötlugoss eru nú í endur­skoðun. Ferðamanna­straumur gerir rýminguna erfiðari.

Vegna vaxandi fjölda erlendra ferða­manna þarf að uppfæra ýmsar viðbragðs­áætlanir vegna hugsanlegra náttúru­hamfara, og viðbúið er að rýmingar í næsta nágrenni myndu ná til tugþúsunda. Þetta kemur fram í Frétta­blaðinu í dag.

Mikil fjölgun í umferð ferða­manna um Suðurland á stuttum tíma er það sem gerir fyrri rýmingar­áætlanir úreltar. Þetta er meðal niður­staðna fundar undir­búnings­hóps viðbragðs­aðila, þar á meðal Almanna­varna, sem kom saman á fimmtudag. „Ef Katla gysi á þessu ári gæti þurft að koma þúsundum ferða­manna burt af hættu­svæðum en ekki þarf að fara mörg ár aftur í tímann til að finna viðbragðs­áætlanir sem gerðu ráð fyrir rýmingu tiltölu­lega fámenns hóps íbúa og að erlendir ferðamenn heimsóttu Suðurland aðeins á sumrin,“ segir í tilkynningu undir­búnings­hópsins.

Víðir Reynisson, verkefnis­stjóri Almanna­varna á Suður­landi, segir við Frétta­blaðið að mikilvægt sé að kort­leggja vel öll atriði sem þarf að huga að ef til rýmingar þarf að koma, og umfangið sé mikið, enda séu um þrjú þúsund manns búsettir á rýmingar­svæðum Kötlu en á góðum sumardegi fjór- til fimm­faldist sú tala vegna umferðar ferða­manna.

Til eru samtíma­heimildir um ein níu Kötlugos, frá 1580 að telja, sum stór eins og það síðasta sem kom upp úr jökli árið 1918, eða 99 árum.

Jökulhlaupin eru gríðar­stór, um 100-falt vatns­meiri en úr Eyja­fjallajökli 2010 og að minnsta kosti fjórum til fimm sinnum öflugri en vatns­flóðin á Skeiðar­ársandi 1996, eftir eldgosið í Gjálp, að því er segir í Frétta­blaðinu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár