Sigmundur gagnrýninn í viðtali: Segir samstarf Evrópuríkja „leysast upp í vitleysu“

Forsætis­ráðherra segir að samstarf Evrópu­þjóðanna í flótta­mannamálum sé „allt að leysast upp í vitleysu“ og að hugmyndin um Schengen-samstarfið sé „fallin“. Hann sakar kaupmenn um frekju og segir borgar­yfirvöld vera í „þrjósku­kasti“.

Forsætisráðherra
For­sæt­is­ráð­herra Mynd: Getty

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætis­ráðherra lýsir því yfir í viðtali í Bylgjunni í morgun að Schengen-samstarfið um frjáls og vegabréfa­laus ferðalög innan Evrópska efnahags­svæðisins sé komið að falli.

Í viðtalinu í þættinum Í bítið gagnrýndi Sigmundur Seðla­bankann, Lands­bankann, kaupmenn, stjórnar­andstöðuna, borgar­yfirvöld, þýsk yfirvöld og Evrópu­sambands­ríki og sagði Evrópu­sambandið vera „í vitleysu“ í flótta­mannamálum.

Hugmyndin um Schengen er „fallin“

Sigmundur var spurður út í Schengen-samstarfið um landamæra­lausa Evrópu, sem lönd á Evrópska efnahags­svæðinu eru aðilar að. Hann sagði Schengen vera komið að falli.

„Já, mér sýnist það í raun og veru vera að gerast sjálf­krafa, hvort sem mönnum líkar betur eða verr. Það eru alltaf að koma nýjar og nýjar fréttir af einhverjum stöðum þar sem menn eru að setja upp eftirlit á landa­mærum, og núna síðast verið að stoppa umferð milli Danmerkur og Þýska­lands að miklu leyti. Þetta vekur mjög stórar spurningar um Schengen, þegar menn eru hættir svo mikið sem að skrá fólk inn á svæðið, þá er það í rauninni hugmyndin sem það gekk út á, þessi ytri mörk. Þá er hún fallin,“ segir Sigmundur. 

Hann líkur flóttamanna­vandanum við keppnis­íþrótt, þar sem klappað er fyrir flótta­fólkinu eftir lífs­hættulega för með glæpa­gengjum þegar það kemur á „enda­markið“.

„... þar sem er tekið á móti fólki eins og það sé að vinna í einhverri keppni“

„Þannig að það verður mjög erfitt að sjá hvernig Schengen fyrir­komulagið á að lifa þetta af nema menn nái þeim mun meiri samstöðu um aðgerðir og markmið, en það bólar nú lítið á samstöðu í Evrópu­sambandinu um þessi mál núna. Og í raun dapurlegt að sjá hvernig menn eru að vinna í sitt hvora áttina og þetta er einhvern veginn allt að leysast upp í vitleysu. Þetta er vandamál af þeirri stærðar­gráðu, og það er erfitt og flókið, að það verður ekki leyst nema Evrópu­löndin komi sér saman um hvernig eigi að tækla þetta. Það er spurning hvort það er eðlilegt fyrir­komulag, hvort það sé búið til eitthvað endamark, eins og Þýskaland, þar sem er tekið á móti fólki eins og það sé að vinna í einhverri keppni, en á sama tíma leyfa þessi lönd, Þýskaland og fleiri lönd, fólki ekki að koma með eðlilegum hætti. Ekki að fljúga til Þýska­lands með flugvél. Ekki að stoppa á flug­vellinum. Ekki að koma að landa­mærunum á ytra svæðinu, ytri mörkum Schengen, nema í raun með ólöglegum hætti. Þannig að skila­boðin eru þessi: Þið verðið að leita á náðir glæpa­samtaka og reyna að láta smygla ykkur inn með lífs­hættulegum hætti. Ef ykkur tekst það, þá er tekið á móti ykkur og klappað þegar þið komið í land. En ef menn fara ekki í slíka hættuför, þá eru menn bara stoppaðir og sendir aftur. Þetta eru mjög hættuleg skilaboð,“ segir Sigmundur Davíð. 

Í gær kynnti hins vegar Jean Claude Juncker, forseti framkvæmda­stjórnar Evrópu­sambandsins, tillögu um sameiginlega áætlun Evrópu­ríkja um móttöku á 160 þúsund flótta­mönnum. Ríki Schengen tækju þannig öll þátt í móttöku flótta­manna. Samkvæmt Schengen-samstarfinu yrði Ísland skyldugt til að taka þátt í áætlun Evrópu­sambandsins um móttöku flótta­manna. 

„Frekja“ hjá kaupmönnum

Sigmundur gagnrýndi einnig kaupmenn harðlega fyrir hugmyndir þeirra um lækkun tolla á matvæli, en ákveðið hefur verið að tollar verða afnumdir á fatnaði og fleiri vörum, en ekki matvælum.

„Þessi viðbrögð stór­kaupmanna, sem þessi samtök hétu nú áður, ef ég man rétt. Þessi viðbrögð núna þegar verið er að ráðast í þessi sögulegu skref í afnámi tolla, sem setur Ísland nánast í sérflokk í þessum efnum, að menn skuli ekki svo mikið sem segja: Þetta var frábært, tími til kominn. Heldur byrja strax að fussa og sveia yfir því af hverju menn séu ekki að afnema tolla af matvöru. Þetta þykja mér vera furðuleg viðbrögð, sérstak­lega í ljósi þess að í matvælunum er þetta allt annars eðlis. Þar snýst þetta um að við náum að halda úti þeirri matvæla­framleiðslu sem við höfum viðhaldið hér á Íslandi. Þar erum við í raun að verja framlög stjórn­valda, sem við getum kallað neytenda­framlög, vegna þess að þau snúast um að við náum að framleiða mat á samkeppnis­hæfu verði hér á Íslandi. Sem okkur hefur tekist.

„Við erum með lægra matvæla­verð heldur en á öðrum Norður­löndunum.“

Við erum með lægra matvæla­verð heldur en á öðrum Norður­löndunum. Við erum kannski í meðaltali Evrópu­sambandsins í matvæla­verði. Og sérstak­lega, ef við lítum til innlendra matvæla, þá eru þau að styrkja stöðu okkar í þessari samkeppni. Og við höfum líka séð það að erlendis, þar sem menn hafa fellt niður ákveðna tolla, þá hefur það ekki skilað sér til neytenda í lægra verði. Það hefur bara skilað sér í því að verslunin nær að taka meira til sín. Þannig að mér finnst þetta í rauninni frekja að ganga fram með þessum hætti eftir að hafa hamast á innlendri matvæla­framleiðslu, eins og menn hafa gert, þrátt fyrir að hún hafi haldið aftur af verð­bólgunni á undan­förnum árum, að þegar það er verið að afnema tolla og vörugjöld af 1.600 vöru­flokkum, þá séu viðbrögðin þau: Hva, af hverju eruð þið ekki að leyfa okkur að leggja meira á matinn?“

„Hva, af hverju eruð þið ekki að leyfa okkur að leggja meira á matinn?“

Sigmundur Davíð segir að verið sé að semja við „meðal annars vini okkar í Evrópu­sambandinu“ um gagnkvæma niður­fellingu eða lækkun tolla. „Þannig að við getum flutt út skyrið og fleira sem þeir sækjast eftir, lambakjöt eða annað, þeir geta þá flutt meira af sínum vörum hingað.“

Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytenda­samtakanna, segir að ef matvæla­verð á Íslandi sé jafnlágt og Sigmundur Davíð segir ætti innlend matvæla­framleiðsla að þola samkeppni sem fæst með lækkun tolla á matvæli.

„Ég minni á að nú þegar er meirihluti matvæla sem seld eru hér á landi eru innflutt. Hér er forsætis­ráðherra fyrst og fremst að tala um landbúnaðar­vörur. Ef verð er jafn hagstætt og forsætis­ráðherra heldur fram, hvaða ótti er þá varðandi það að lækka tolla?“ spyr Jóhannes. „Hann talar jafnframt um frekju í þeim sem kalla eftir lægri tollum á innfluttar landbúnaðar­vörur. Hvað á þá segja um þá sem ætlast til að neytendur borgi hærra verð vegna þeirra ofurtolla sem lagðir eru á innfluttu vöruna? Er það ekki frekja í þeim að ætlast til að neytendur borgi það sem kostar að halda úti land­búnaði þegar það er ekki þjóð­hagslega hagkvæmt? Stjórn­málamenn gáfu lítið fyrir það að þegar við gengum í EFTA lagðist fata- og húsgagna­framleiðsla að mestu af. Það var í lagi þar sem þessi fram­leiðsla var í raun ekki samkeppnishæf þegar tollvernd lauk. En eflaust er meira hlustað á forystu­menn bænda þegar kemur að innflutnings­verndinni og þá er það bölvuð frekja í þeim sem vilja lægra matvæla­verð að mati forsætis­ráðherra,“ segir Jóhannes.

„Vaxtaokur“ á Íslandi

Sigmundur, sem lofaði því fyrir kosningar að afnema verð­trygginguna, lýsir yfir óánægju sinni í viðtalinu við Bylgjuna vegna „vaxta­okurs“. Hann segir að frumvörp um afnám verð­tryggingar verði væntanlega lögð fram á næsta þingi. „Hins vegar breytir það ekki því að vaxta­okrið á landinu er sjálfstætt vandamál. Það er búið að hanna kerfi sem er beinlínis til þess gert að ríkis­stjórn og stjórn­málamenn séu ekki að skipta sér af vöxtum. En menn geta farið að velta því fyrir sér hvort það sé rétta fyrir­komulag fyrir Ísland miðað við þá vaxta­stefnu sem hér hefur verið rekin. Maður hefði viljað sjá ríkis­bankann, að minnsta kosti á meðan hann er banki í þjóðar­eigu, leggja áherslu á að fara á undan með góðu fordæmi í þjónustu við viðskipta­vini. Keyra niður verð frekar en hitt. Og ég vonast til að sjá þá þróun. Hins vegar ráðast vextir þess banka og annarra ekki eingöngu af þeirra vaxtamun, eða þeirra verð­lagningu á peningum ef svo má segja, heldur líka af vaxta­stefnu Seðla­bankans og fleiru. En já, maður hefði viljað sjá Lands­bankann ganga lengra í því að draga hina bankana með sér í því efni.“

Forsætisráðherra gagnrýnir fleiri

Í viðtalinu gagnrýndi Sigmundur Davíð einnig borgar­yfirvöld, stjórnar­andstöðuna og fleiri. Hann sagði borgar­yfirvöld hafa ætlað sér í „þrjósku­kasti“ að hóta að „stoppa framkvæmdir, stoppa að hægt sé að nýta lóðirnar í eitthvað annað“ ef rædd yrði hugmynd um að nýr Land­spítali yrði á öðrum stað en þegar hefur verið ákveðinn. Sigmundur er andsnúinn stað­setningu hans og vill „byggja bara nýjan og flottan spítala eftir öllum nútíma­kröfum og þörfum á stað sem er meira miðsvæðis, sem liggur betur við umferð, frekar en að byggja þetta borgvirki sem liggur þarna.“

Þá segir Sigmundur að stjórnar­andstöðu­þingmenn virðast gagnrýna ríkis­stjórnina án þess að kynna sér málin. „Stundum finnst mér nú Árni Páll og sum þeirra þarna í stjórnar­andstöðu bara ákveða fyrirfram hvað þau ætla að segja og byrja svo að blaða í frum­varpinu.“

Spurður út í lítinn stuðning við Fram­sókna­flokkinn segir Sigmundur að flokkur hans, sem mælist með um helming þess fylgis í skoðana­könnunum sem hann fékk í alþingis­kosningunum, standi sögulega betur en hinir hefð­bundnu flokkarnir í ljósi sögu síðustu ára.

„Það er nú þannig með alla þessa hefð­bundnu flokka. En við þó, ef við lítum til sögunnar, meðal­fylgis síðustu 10 til 15 ára, í staðinn fyrir að skoða stöðuna að undan­förnu, þá stendur minn flokkur langbest. Við erum með rúmlega 100 prósent eða í kringum 100 prósent af meðal­fylgi. Á svipuðum slóðum og við höfum verið í seinni tíð, á meðan aðrir flokkar eru í undir helmingi af sínu fylgi eða tvo þriðju.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár