Framíkall um kosningar í apríl 2017 vakti hneykslan

Stjórn­ar­þing­menn eru ekki allir á sama máli og for­ysta rík­is­stjórn­ar­innar um tíma­setn­ingu kosn­inga. Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hvatti til þess að kosn­ing­arnar yrðu haldnar í apríl 2017 í framí­kalli á Alþingi í dag.

Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hvatti til þess í framí­kalli á Alþingi í dag að þing­kosn­ingar yrðu haldnar í apríl 2017. Skömmu áður höfðu bæði for­sæt­is­ráð­herra og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra gefið fyr­ir­heit um að kosið yrði í haust. Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar hneyksl­uð­ust á ummælum Þor­steins, en sjálfur tók hann ekki til máls í umræð­unum.

„Þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, Þor­steinn Sæmunds­son, kall­aði hér af aftasta bekknum fram í að kosn­ingar gætu verið í apríl 2017,“ sagði Helgi Hjörvar, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. „Þing­mað­ur­inn er full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins í for­sætis­nefnd og það vekur auð­vitað enn á ný þær spurn­ingar hvort það sé raun­veru­lega fyr­ir­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar að drepa málum á dreif og reyna að fresta kosn­ingum fyrst fram á haustið og síðan fram á vorið og hvort yfir­lýs­ing fjár­mála­ráð­herra um að kosið verði í haust og það verði ekki síð­asta þingið á þessu kjör­tíma­bili haldi eða haldi ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár