Kína stóreykur lánveitingar til Ástrala

Bank of China, stærsti banki Kína sem er jafnframt í opinberri eigu, hefur ákveðið að tvöfalda lánveitingar til Ástrala, einkum þeirra sem standa í húsnæðis­kaupum. Ástæðan er vaxandi eftir­spurn í Ástralíu og síðan mikill áhugi hjá kínverskum stjórn­völdum þegar kemur að Ástralíu. Kínverskir fjár­festar og opinber kínversk fyrirtæki hafa á undan­förnum árum verið að auka fjár­festingar sína í Ástralíu verulega, ekki síst í landareignum og land­búnaði.

Shanjun Hu, einn stjórn­enda Bank of China, segir í viðtali við Bloomberg að ástralski markaðurinn þurfi á fjár­innspýtingu að utan að halda og það sé hennar von að í fram­tíðinni muni fólk leita til Bank of China með sín banka­viðskipti.

Commonwealth Bank of Australia er með stærstu hlutdeild húsnæðis­lána á ástralska markaðnum, en hann er sambærilegur við Íbúa­lánasjóð hér á landi að mörgu leyti, það er að bankinn hefur félagslegt hlutverki og er að mestu í opinberri eigu. Hlutdeild hans, og þriggja annarra ástralaska banka, nemur um 80 prósent af heildinni.

Kínverjar hafa tekið framúr Bandarískum fjár­festum sem stærstu erlendu fjár­festarnir í Ástralíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár