Þriðja þáttaröðin af House of Cards kemur í lok febrúar - sjáðu stiklu

Þeir áskrifendur Netflix sem hafa ánægju að spennu­þrungnu og lævísu klifri Frank Underwood upp valda­stiga bandarískra stjórn­mála geta brátt tekið gleði sína á ný. Þriðja þátta­röðin í hinum marg­verðlaunuðu House of Cards verður aðgengileg á streymi­veitunni frá 27. febrúar næst­komandi. Þættirnir verða síðan teknir til sýningar á RÚV 2. mars.

Dagsetningin á frum­sýningu nýju þáttaraðarinnar var fyrst tilkynnt 1. desember síðastliðinn með skila­boðum á Twitter.

A special message from the White House. https://t.co/YxFcHfA5qy

— House of Cards (@HouseofCards) December 1, 2014

Í sjónvarps­útsendingu frá Golden Globe-verðlauna­afhendingunni, sem fór fram fyrr í þessum mánuði, var síðan fyrsta stiklan úr þátta­röðinni sýnd. Þess má geta að Kevin Spacey, sem leikur Frank Underwood, fékk Golden Globe verð­launin fyrir túlkun sína á þessum ómótstæðilega pólitíska klækjaref sem áhorf­endur annað hvort elska eða elska að hata. Hann hafði verið tilnefndur til verð­launanna árið áður án þess að fá þau. Það ár fékk hins vegar Robin Wright verð­launin fyrir túlkun sína á Claire Underwood. Auk þess var House of Cards valin besta dramatíska þátta­röðin það árið.

http://youtu.be/yAk4ycJ2xTo

Líkt og tíðkast á Netflix þá verður þriðja þátta­röðin af House of Cards sett inn í heild sinni. Þeir sem vilja geta því horft á hana alla í einum rykk, hafi þeir tíma til og áhuga á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár