Starfsfólk ráðuneytanna ólíklegt til að tilkynna #metoo-mál

Skýrsla um #metoo og Stjórn­ar­ráð Íslands sem vinnu­stað var kynnt í rík­is­stjórn í gær­morgun.

Skýrsla um #metoo og Stjórn­ar­ráð Íslands sem vinnu­stað var kynnt í rík­is­stjórn í gær­morgun en skýrslan var unnin af stýri­hópi um heild­stæðar úrbætur að því er varðar kyn­ferð­is­legt ofbeldi. Frá þessu er greint í frétt for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins.

Nið­ur­staða athug­unar stýri­hóps­ins er að öll ráðu­neyti séu fær um að bregð­ast við kyn­ferð­is­legri og kyn­bund­inni áreitni þangað til hún kemur upp. Í skýrsl­unni segir að með þessu sé átt við að almennt séu fyrir hendi þeir verk­ferlar sem kveðið er á um í lögum og reglum um vinnu­vernd og starfs­fólk fær reglu­lega tæki­færi til að kynna sér þá ferla og um leið hvert það getur leitað ef mál kemur upp. Aftur á móti þyrftu ráðu­neytin að standa betur að gerð áhættu­mats og þá með til­liti til and­legra og félags­legra þátta, og byggja bæði for­varnir og fræðslu á slíku mati.

Hvatning ekki borið tilskildan árangur

Ráðu­neytin hafa brugð­ist við nið­ur­stöðum kann­ana um áreitni eftir því sem við á, sam­kvæmt skýrslu­höf­undum. „Nið­ur­stöður hafa verið kynntar á starfs­manna­fundum og í þeim til­fellum þar sem áreitni hefur mælst hafa starfs­menn verið hvattir til að koma með slík mál upp á yfir­borðið. Sú hvatn­ing hefur á hinn bóg­inn, að því er vitað er, ekki borið til­skildan árangur og svo virð­ist sem starfs­fólk sé ólík­legt til að til­kynna mál sem koma upp. Í þessu sam­bandi hefur verið bent á að þótt leita megi til ólíkra aðila innan hvers ráðu­neytis, komi það oft­ast í hlut sömu ein­stak­linga eða ein­stak­lings að fjalla um mál,“ segir í skýrsl­unni.

Í skýrsl­unni eru lagðar til eft­ir­far­andi aðgerðir:

  1. Skipað verði óháð fagráð, sem hafi það hlut­verk að taka við, meta og fara með til­kynn­ingar og ábend­ingar sem því ber­ast um ein­elti, kyn­bundna áreitni, kyn­ferð­is­lega áreitni eða ofbeldi.
  2. End­ur­skoðun á Stefnu og áætlun Stjórn­ar­ráðs­ins gegn ein­elti, kyn­ferð­is­legri áreitni og kyn­bund­inni áreitni, ofbeldi og annarri ótil­hlýði­legri hátt­semi verði fram haldið og skerpt verði á verk­ferlum í til­fellum þar sem und­ir­stofn­anir leita ráða um máls­með­ferð.
  3. Stjórn­ar­ráðs­dag­ur­inn 2019 verði helg­aður #metoo.
  4. Gert verði átak í að efla fræðslu og umræðu til að byggja upp vinnu­staða­menn­ingu þar sem kyn­ferð­is­leg og kyn­bundin áreitni og ofbeldi fær ekki að líð­ast. Jafn­rétt­is­stofu verði falið að taka saman yfir­lit yfir fræðslu­efni sem þegar er til og að útbúa fræðslu­pakka til þriggja ára sem ráðu­neytin geta nýtt sér. Þá verði Jafn­rétt­is­stofu falið að gera til­lögu um bætta fræðslu fyrir nýliða innan Stjórn­ar­ráðs­ins.
  5. Kannaður verði fýsi­leiki þess að útbúa Jafn­rétt­is­skref fyrir starf­semi vinnu­staða, sam­bæri­leg Grænu skref­unum um vist­vænan rekstur.
  6. Ráðu­neytin tryggi að jafn­rétt­is­full­trúar hafi for­sendur, burði og svig­rúm til að sinna þeim mik­il­vægu verk­efnum sem á borði þeirra eru.

Fólk velur að láta sem ekkert hafi í skorist

Enn fremur kemur fram í skýrsl­unni að konur séu meiri­hluti starfs­fólks innan Stjórn­ar­ráðs­ins. Þrátt fyrir það séu karlar lík­legri til að gegna stjórn­enda­stöðum. Karllæg vinnu­staða­menn­ing virð­ist ekki algeng innan Stjórn­ar­ráðs­ins en ekki þurfi nema einn eða tvo starfs­menn til að spilla starfsand­anum, til að mynda með óvið­eig­andi athuga­semdum á kaffi­stofu eða óvið­ur­kvæmi­legri hegðun á starfs­manna­skemmt­unum. Starfs­fólk og stjórn­endur virð­ast almennt ekki vel búin undir að takast á við slíkt í almennum störfum, og lík­leg­ast virð­ist að fólk velji að láta sem ekk­ert hafi í skorist.

Hægt er að lesa skýrsl­una hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár