Nýsköpun: Mistök það besta af öllu

Kjarninn miðlar ehf., Keldan og Arion banki hafa tekið höndum saman og ætla að fjalla um marg­víslegar hliðar frumkvöðla- og nýsköpunar­starfs í tengslum við Start Up Reykjavík viðskipta­hraðalinn (e. business accelerator), sem Arion banki hefur staðið síðan árið 2012 í samstarfi við Klak Innovit.

Kjarninn hefur unnið myndbönd um margar hliðar Start Up Reykjavík, íslenska frumkvöðla og marg­víslegt nýsköpunar­starf fyrir­tækja hér á landi. Mynd­böndin verða sýnd samhliða útgáfu Kjarnans á fimmtudögum næsta hálfa árið. Í mynd­böndunum eru til umfjöllunar öll helstu viðfangs­efni frumkvöðla­starfsins, ósigrar og sigrar, erfið­leikar og tækifæri, fífl­dirfska og hugrekki.

Í fyrsta mynd­bandinu er hús tekið á leikja­fyrirtækinu Plain Vanilla sem hefur vaxið gríðar­lega hratt eftir að það sendi frá sér spurninga­leikinn Quiz Up sem nú er með meira en sextán milljónir notenda um allan heim og er að umbreytast í samfélags­miðil. Erlendir fjár­festar hafa lagt fyrir­tækinu til meira en fjóra milljarða króna frá því að Quiz Up App-ið var gefið út í nóvember í fyrra. Á hálfu ári hefur starfs­mönnum fjölgað jafnt og þétt og eru þeir ríflega 50 talsins. Fyrir­tækið flutti nýlega í nýjar þúsund fermetra höfuð­stöðvar að Laugavegi 77. Þorsteinn Friðriksson er forstjóri fyrir­tækisins og stofnandi þess. Hann segir það hafa verið dýrmæta reynslu að hafa gert mistök í upphafi og framleitt vöru sem markaðir tóku ekki nægilega vel. Þá segir hann Ísland vera að mörgu leyti frábæran stað til að stofna fyrirtæki. Hér sé mikill mannauður og vel menntað ungt fólk sem búi yfir miklum hæfi­leikum.

almennt_17_04_2014
almennt_17_04_2014

Einar Gunnar Guðmundsson, forsvars­maður nýsköpunar­mála hjá Arion banka, segir að frumkvöðlar fái dýrmæta reynslu í gegnum Startup Reykjavík. „Við leitumst stöðugt við að skjóta fleiri stoðum undir verðmæta­sköpun hér á landi og stuðla að samvinnu í þeim efnum. Við hjá Arion banka stöndum að Startup Reykjavík og Startup Engergy Reykjavík verk­efnunum í samstarfi við Innovit og Klak og fleiri aðila. Eitt það mikil­vægasta við Startup Reykjavík verkefnin er að þar fá frumkvöðlar ekki bara aðgengi að fjármagni og vinnu­aðstöðu heldur einnig aðgang að dýrmætri reynslu annarra frumkvöðla. Þar leiðum við saman reynslu­mikla einstaklinga sem hafa náð árangri í sínum verkefnum og þá sem eru að stíga fyrstu skrefin. Samstarf okkar við Kjarnann og Kelduna er liður í þessari þekkingar­miðlun. Við viljum miðla sögu þeirra sem hafa náð góðum árangri, miðla þeirra þekkingu og reynslu þannig að aðrir geti nýtt sér til góðra verka.“

Thor Thors, framkvæmda­stjóri Keldunnar, segir ánægjulegt að efla Kelduna með umfjöllunum um nýsköpun af ýmsu tagi og á ýmsum stigum. „Það er okkur ánægjulegt að bæta við mynd­böndum á Kelduna. Mynd­böndin, sem munu birtast í Kjarnanum og á Keldunni, munu sýna fólki hvað það er sem frumkvöðlar og rekstrar­aðilar eru að glíma við. Sem er í senn skemmtilegt og krefjandi. Það eru fjölmargar áhuga­verðar sögur úr íslensku sprota- og atvinnu­lífi. Vonandi náum við að koma mörgum þeirra á framfæri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár