Lýðræðiskvartetinn í Túnis hlýtur friðarverðlaun Nóbels

Lýðræðiskvartetinn í Túnis, bandalag borgaralegra samtaka sem berjast fyrir lýðræðis­þróun í Túnis, hljóta friðar­verðlaun Nóbels 2015. Tilkynnt var um ákvörðun norsku Nóbels­nefndarinnar fyrir skömmu. Formaður nefndarinnar segir Lýðræðiskvartetinn hljóta verð­launin fyrir mann­réttinda­baráttu sína og að hafa árið 2013, þegar landið var á barmi borgara­styrjaldar, leitt friðsamlegar pólitískar framfarir.

Alls voru 273 tilnefndir til verð­launanna í ár, þar af 205 einstaklingar og 68 samtök. Í umfjöllun fjöl­miðilsins The Guardian segir að líklegustu sigurveg­arar þóttu vera kanslari Þýska­lands Angela Merkel, fyrir móttöku hundruð þúsunda flótta­manna, Frans páfi, og innan­ríkis­ráðherra Banda­ríkjanna John Kerry ásamt kollega sínum í Íran, Javad Zarif, fyrir Kjarnorku­samning landanna.

Eins og fyrr greinir voru það ekki trúar­leiðtogar eða vestrænir stjórn­málamenn sem hlutu verð­launin, heldur Lýðræðiskvartetinn í Túnis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár