Sýslumaður kvartar undan „ótæpilegri“ umræðu um starfsmenn embættisins

Þórólfur Halldórsson, sýslu­maðurinn á höfuð­borgar­svæðinu, segist ekki hafa kynnt sér athuga­semdir fjölmiðla­fulltrúa Öryggis- og samvinnu­stofnunar Evrópu við lögbannið sem sett var á frétta­flutning Stundarinnar og Reykjavík Media upp úr gögnum frá Glitni.

Sýslu­maðurinn á höfuð­borgar­svæðinu og starfs­menn embættisins vilja ekki tjá sig um athuga­semdir Öryggis- og samvinnu­stofnunar Evrópu við lögbannið sem sett var á allan frekari frétta­flutning Stundarinnar og Reykjavík Media upp úr gögnum frá Glitni.

Þórólfur Halldórsson sýslu­maður sagðist ekki hafa kynnt sér umrædda gagnrýni sem fjallað var um í flestum fjöl­miðlum í gær og ekki lesið athuga­semdir Harlem Désir, fjölmiðla­frelsis­fulltrúa ÖSE. Þá kom hann af fjöllum þegar hann var spurður um staðla ÖSE að því er varðar vernd og takmörkun tjáningar­frelsis. 

Þetta kom fram á opnum fundi stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar um fjölmiðla­frelsi og lögbann sýslu­manns sem nú stendur yfir og er sýndur í beinni útsendingu á vef Alþingis.

Fulltrúar sýslu­manns sögðust hafa takmarkað svigrúm til að tjá sig um einstaka mál og tók sýslu­maður fram í upphafi fundar að nær allt það sem embættið teldi sig geta sagt um málin hefði komið fram í tilkynningu sem send var fjöl­miðlum á dögunum. Þá vísaði hann sérstak­lega til þess að upplýsingar um ýmsar embættis­athafnir sýslu­manns væru undan­þegnar upplýsinga­lögum.

Sýslu­maður kvartaði undan umræðu um lögbannið og sagði að starfs­menn embættisins hefðu setið undir „ómaklegri“ gagnrýni og að fjallað hefði verið „ótæpilega“ um málið. Þingmenn þurftu að ganga á eftir spurningum sínum til fulltrúa sýslu­manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár