Ólga í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd vegna frumkvæðisathugunar

Sýn nefnd­ar­manna í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd á það hvernig standa skuli að frum­kvæð­is­at­hugun á hæfi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra vegna tengsla sinna við Samherja er ólík milli þing­manna, sem og hvernig skuli fjalla um málið opin­ber­lega.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegsráðherra.
Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Nefnd­ar­menn í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd eru ekki sam­mála í afstöðu sinni gagn­vart frum­kvæð­is­at­hugun á hæfi Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. Einnig eru nefnd­ar­menn ekki sam­mála um hvað megi fjalla um opin­ber­lega og hvað ekki.

Guð­mundur Andri Thorsson, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og nefnd­ar­maður í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd, vekur athygli á mál­inu á Facebook-síðu sinni en í dag snýr hann aftur til þing­starfa eftir nokk­urra daga dvöl erlendis. Hann segir að í fjar­veru sinni hafi hann fengið ákúrur, bæði í formi bók­unar á nefnd­ar­fundi og í ræðu­stól Alþingis vegna frá­sagnar á Facebook af fundi í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd þegar ákveðið var að hefja frum­kvæð­is­at­hugun á hæfi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra.

„Töldu full­trúar meiri­hluta, og tals­maður þeirra, Líneik Anna Sæv­ars­dóttir, að ég hefði brotið 19. grein þing­skap­ar­laga sem kveður á um trúnað um það sem gestir og nefnd­ar­menn segja á lok­uðum nefnd­ar­fundum,“ skrifar hann og bætir því við að hann hafi talið sig vera að bregð­ast við ákalli í sam­fé­lag­inu um það að fá að vita hvað Alþingi hyggst – eða hyggst ekki – aðhaf­ast í Sam­herj­a­mál­inu.

Harmar að nefndarmaður hafi rofið trúnað og rýrt traust á störfum nefndarinnar

Líneik Anna Sæv­ars­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og vara­for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, lagði fram bókun á fundi nefnd­ar­innar þann 9. des­em­ber síð­ast­lið­inn þar sem vísað var í 19. grein þing­skap­ar­laga sem segir að óheim­ilt sé að vitna til orða nefnd­ar­manna eða gesta sem falla á lok­uðum nefnd­ar­fundi nema með leyfi við­kom­andi.

Þá kemur fram í bókun Líneikar Önnu að eftir fund stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, þann 6. des­em­ber síð­ast­lið­inn, hafi Guð­mundur Andri fjallað opin­ber­lega um efni fund­ar­ins á þann veg að ekki verði annað séð en að um skýrt brot á lögum um þing­sköp sé að ræða. „Um leið og það er harmað að nefnd­ar­maður skuli rjúfa trúnað og rýra þar með traust á störfum stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, eru athuga­semdir þar að lút­andi hér með færðar til bókar,“ segir í bók­un­inni.

Guð­mundur Andri seg­ist aftur á móti einmitt hafa gætt þess í færsl­unni að rekja ekki ein­stök ummæli ein­stakra nefnd­ar­manna þegar tek­ist var á um frum­kvæð­is­at­hugun á hæfi ráð­herra en hafi greint frá afstöðu þeirra með almennum orðum. „Ég gerði mér ekki grein fyrir því að sú afstaða væri trún­að­ar­mál – og átta mig ekki enn á því. Ég tel mig með öðrum orðum ekki brot­legan við téða grein, sem ég tel setta til að vernda gesti á nefnd­ar­fundum og tryggja trúnað um við­kvæm mál og upp­lýs­ingar, ekki mál sem þegar eru á allra vit­orði eins og hér var um að ræða,“ skrifar hann.

Telur undarlegt að vera orðinn sá sem helst sé talinn hafa gerst brotlegur í starfi í Samherjamálinu

Guð­mundur Andri seg­ist enn fremur aldrei hafa sóst sér­stak­lega eftir písl­ar­vætti en það sé óneit­an­lega und­ar­legt að vera nú orð­inn akkúrat sá þing­maður sem helst sé tal­inn hafa gerst brot­legur í starfi í Sam­herj­a­mál­inu. „Og fyrir þá höf­uð­sök að segja frá, enda ekk­ert frekar til þess fallið að rýra virð­ingu Alþingis, að mati þessa fólks, en að segja frá því sem þar fer fram.“

Hann líkur færslu sinni á Facebook með því að segja að sjálfur telji hann að það sé einn grunn­ur­inn að því að end­ur­reisa virð­ingu Alþingis.

Klofin nefnd

Forsaga máls­ins er sú að þrír þing­menn sam­þykktu á fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar þann 6. des­em­ber síð­ast­lið­inn að hefja frum­kvæð­is­at­hugun á því hvernig Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, myndi láta meta hæfi sitt vegna tengsla sinna við útgerð­ar­fyr­ir­tækið Samherja og hvort til­efni hefði verið fyrir slíkri athugun í ráð­herra­tíð hans.

Þing­menn­irnir sem sam­þykktu að hefja athug­un­ina eru Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, for­maður nefnd­ar­innar, Guð­mundur Andri Thorsson og Andrés Ingi Jónsson sem nú er óháður þing­maður. Þingmenn meiri­hlut­ans í nefnd­inni gagn­rýndu aftur á móti til­lög­una og töldu rétt­ast að ráð­herra væri fyrst gefið færi á að útskýra mál sitt.

Fram kom í fréttum um málið að Þór­hildur Sunna yrði ekki með fram­sögu máls­ins heldur Líneik Anna. Þór­hildur Sunna sagði í sam­tali við RÚV að það hefði ekki verið vilji til þess hjá meiri­hluta nefnd­ar­innar að hún hefði fram­sögu um málið. „Þeim finnst ég hafa gert upp hug minn varð­andi það hvort ráð­herr­ann sé van­hæfur.“ Hún lagði til að Andrés yrði fram­sögu­maður en á það féllst meiri­hlut­inn heldur ekki.

Ekkert því til fyrirstöðu að ráðherra komi fyrir nefndina

Þór­hildur Sunna sagði fullt til­efni fyrir þess­ari frum­kvæð­is­at­hugun og nefndi meðal ann­ars að Kristján Þór hefði lýst yfir eftir umfjöllun um Sam­herj­a­skjölin að hann myndi segja sig frá öllum málum tengdum Samherja. Engu að síður hefði hann setið rík­is­stjórn­ar­fund þar sem teknar voru ákvarð­anir um aðgerðir vegna Sam­herj­a­skjal­anna. Hún tók skýrt fram í sam­tali við RÚV að þessi frum­at­hugun væri engin nið­ur­staða og ekk­ert væri því til fyr­ir­stöðu að ráð­herra kæmi fyrir nefnd­ina. „En mér finnst það ekki skil­yrði fyrir því að hefja frum­kvæð­is­at­hugun.“

Líneik Anna lagði fram bókun á fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar þann 9. des­em­ber síð­ast­lið­inn þar sem kemur fram að nefndin hafi mik­il­vægu hlut­verki að gegna sam­kvæmt þing­skap­ar­lögum, meðal ann­ars þegar komi að málum sem varða æðstu stjórn rík­is­ins.

„Það er því nauð­syn­legt að verk­lag og ákvarð­anir nefnd­ar­innar, og ekki síst for­ystu hennar, séu vel ígrund­aðar og vand­aðar í hví­vetna. Áhyggju­efni er þegar for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar hrapar ítrekað að álykt­unum og gefur sér nið­ur­stöðu fyrir fram í flóknum málum, nú síð­ast í málum sem varða hæfi ráð­herra sjáv­ar­út­vegs­mála. Þar hefur þess ekki verið gætt að mál­efna­leg sjón­ar­mið séu höfð að leið­ar­ljósi við með­ferð mála í nefnd­inni, með því að veita ráð­herra eðli­legt færi á því að skýra orð sín, sem og að neita nefnd­ar­mönnum um frek­ari gögn í mál­inu, áður en ákvörðun er tekin um frum­kvæð­is­at­hugun nefnd­ar­innar,“ stendur í bókun Líneikar.

Orri Páll Jóhanns­son, Óli Björn Kárason, Brynjar Níelsson og Þor­steinn Sæmunds­son tóku undir bók­un­ina.

Frumkvæðisathugun felur ekki í sér ályktun

Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, lagði þá fram bókun þar sem fram kemur að umrædd frum­kvæð­is­at­hugun sé vel ígrunduð og bein­línis til þess fallin að veita ráð­herra eðli­legt færi á að skýra orð sín og veita nefnd­ar­mönnum öll til­heyr­andi gögn í mál­inu. Frum­kvæð­is­at­hugun feli ekki í sér ályktun og sé ekki nið­ur­staða. Guðjón Brjáns­son og Andrés Ingi Jónsson tóku undir bók­un­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár