Sigmundur: Hægt að nota arð úr bönkum í nýjan spítala við Vífilsstaði

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætis­ráðherra vill að stjórn­völd skoði hvort ekki sé best að ráðast í byggingu nýs Land­spítala við Vífils­staði í Garðabæ. Þetta kemur fram í grein sem hann skrifar á vefsíðu sína í dag.

Í Morgun­blaðinu í dag er rætt við bæjar­stjórann í Garðabæ um mögu­leikann á uppbyggingu Land­spítala við Vífils­staði. Bæjar­yfirvöld þar segjast reiðubúin í samstarf um byggingu nýs spítala þar, og hægt sé að liðka fyrir málinu á ýmsan hátt.

Sigmundur Davíð er mjög jákvæður gagnvart þessari hugmynd. „Mér finnst ekki hægt að líta framhjá þessum kosti nú þegar bæjar­stjórinn hefur stigið fram með þeim hætti sem hann gerði,“ skrifar Sigmundur. Hann hafi oft á undan­förnum árum lýst þeirri skoðun sinni að hann telji æskilegt að reisa nýjan spítala annars staðar en við Hringbraut, eins og nú er áformað.

„Að mínu mati ber stjórn­völdum að bregðast við þessu tilboði Garða­bæjar, taka því fagnandi og skoða hvort ekki sé best, í ljósi allra aðstæðna að ráðast í byggingu nýs Land­spítala við Vífils­staði. Með því væri hægt að byggja spítalann hraðar, á hagkvæmari hátt og miklu, miklu betur.“

Á Vífils­stöðum væri hægt að hanna nýjan glæsi­legan spítala frá grunni, segir Sigmundur Davíð. „Allt fyrsta flokks í samræmi við möguleika og þarfir samtímans. Enginn fjár­austur í að reyna að gera við hálfónýta hluti, tjasla því saman sem ekki passar saman og laga óhentugar byggingar að heilbrigðis­þjónustu 21. aldar. Allt hannað sem ein heild sem vinnur eins og vél um leið og hugað er að mannlega þættinum, því að fólki líði vel í umhverfinu og það sé til þess fallið að lyfta andanum og stuðla að betri andlegri og líkamlegri líðan sjúkling, gesta og starfs­fólks.“ 

Hann segir að margt muni vinna með ef spítalinn verði byggður á nýjum stað. Ekki bara staða ríkis­sjóðs sem hafi batnað. „Verðmæti fasteigna og lóða í miðbæ Reykja­víkur hefur hækkað gríðar­lega frá því að síðast var lagt mat á stað­setningu spítalans. Með því að selja húsnæði og lóðir gætu ríki og borg náð tugmilljarða tekjum. Þessar tekjur gæti ríkis­sjóður nýtt til að standa straum af umtals­verðum hluta byggingar­kostnaðar nýs spítala.“

Hægt væri að selja húsnæði og lóðir og nýta fjármagn strax til að flýta fyrir framkvæmdum á nýjum stað þótt spítalinn myndi ekki flytja strax. „Einnig gæti ríkið veitt öðru fjármagni, t.d. arði úr bönkunum í spítala­bygginguna þar til tekjur af sölu eigna við Hringbraut skiluðu sér.“ Aðrar leiðir komi til greina en hvaða leið sem farin yrði „myndu tugir milljarða skila sér í ríkissjóð við það að færa spítalann. Peningar sem ekki yrðu til ella.“ Þá peninga mætti nýta í aðra innviða­uppbyggingu, ekki síst á lands­byggðinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár