Nýr þingmaður Flokks fólksins vill „taka á RÚV“ vegna umræðu um kynferðisbrot og KSÍ

Eyjólfur Ármannsson sagði umdeildan brandara í kosninga­baráttunni og er nú farinn að berjast fyrir inngripum í málefni Ríkis­útvarpsins. „Tjáningar­frelsið krefst þess,“ segir hann.

Eyjólfur Ármannsson
Eyjólfur Ármanns­son Þing­maður Flokks fólks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

Eyjólfur Ármannsson, einn sex þingmanna Flokks fólksins, vill að tekið verði á málefnum Ríkis­útvarpsins vegna umræðu um ásakanir gegn lands­liðsmönnum í knatt­spyrnu. 

Þing­maðurinn nýkjörni boðaði þessa afstöðu í ummælum undir færslu lögmannsins Sigurðar G. Guðjóns­sonar á Facebook, þar sem hann kvartar undan því að landsliðs­þjálfarinn í knatt­spyrnu hafi ekki geta valið alla þá í lands­liðið sem hann vildi, vegna þess að sex lands­liðsmenn hefðu verið ásakaðir um brot. Í umkvörtun sinni segir Sigurður G. að menn „bogni og brotni“ og gefist upp „af ótta við úthrópun og aftöku í bergmáls­helli samfélags­miðla“. Eyjólfur tekur undir það.

„Þessi kúltúr var búinn til á RÚV. Því fyrr sem tekið verður málefnum stofnunarinnar því betra. Tjáningar­frelsið krefst þess,“ skrifaði Eyjólfur.

Eyjólfur var kjörinn á þing í nýafstöðnum alþingis­kosningum í krafti kosninga­sigurs Flokks fólksins, sem hlaut óvænt 8,8% atkvæða á landsvísu. Hann hafði vakið athygli fyrir uppáhalds „fimmaura­brandarann“ sinn, í svari til Vísis.is í kosninga­umfjöllun, sem snerist um að Íslend­ingur myndi kasta Pólverja úr Eiffel-turninum, vegna þess að nóg væri af Pólverjum hér á landi, eins og Frakki myndi kasta crossaint og Pólverji pylsu.

Sigurður G. Guðjónsson, sem verið hefur forseti dómstóla KSÍ, var nýverið gagn­rýndur fyrir að birta trúnaðar­skjöl um ásakanir konu gegn lands­liðsmanni í knatt­spyrnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár