Skoskur fiskur fann upp kynlífið fyrir 385 milljón árum

Vísinda­menn sem rannsakað hafa steingvervinga hafa komist að því að kynlíf, sem mannkynið hefur notað til að ylja, gleðja og auðvitað fjölga sér, hafi verið „fundin upp“ af fornri fiskitegund sem var uppi fyrir um 385 milljón árum við Skotland. The Guardian greinir frá þessu.

Uppgötvunin þykir mikilvægt skref við að kortlegja þróun fjölgunar lífvera með kynlíf tveggja aðila. Samkvæmt henni þróaðist á karlkyns­fiski tegundarinnar Microbrachius dicki, sem var uppi við Skotlandi fyrir 385 milljónum ára, L-laga kynfæri sem hann notaði til að koma sæði til kvenkyns-fiska af sömu tegund. Kvenkyns-fiskarnir þróuðu samhliða með sér lítil bein sem þær notuðu til að skorða L-laga kynfæri karlkyns-fisksins þegar mökun átti sér stað.

Fiskarnir sem um ræðir voru snonefndir brynháfar (e. placoderm) sem höfðu bein­plötur á haus og brjósti sér til varnar en aftur­hlutinn var óbrynjaður. Lengi vel var talið að brynháfarnir hefðu dáið út og ættu sér ekki afkomendur í nútímanum. Þeir voru hins vegar hryggdýr og erunú taldir af mörgum vera elstu forfeður mannsins. Brynháfarnir voru nefnilega með kjálka, tennur og paraða útlimi, alveg eins og maðurinn. Og nú telja vísinda­menn að þeir hafi líka fært okkur kynlífið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár