Herra Goldman Sachs fallinn frá - leiddi endurreisnarstarf í New York

John C. Whitehead, sem leiddi áratugum saman starf Goldman Sachs og var meðal stærstu einstaklings­hluthafa bankans, lést í gær 92 ára að aldri. Whitehead var meðal virtustu banka­manna heimsins, og leiddi endurreisnastarf í New York, í umboði bandarískra stjórn­valda og borgar­yfirvalda í New York, eftir árásirnar á Tvíbura­turnanna í New York, 11. september 2001. Whitehead var virtur meðal bæði Demókrata og Repúblikana, og starfaði og ræddi oft á persónu­legum trúnaðar­fundum um stöðu efnahags­mála við bæði Bill Clinton og George W. Bush, í forsetatíð þeirra.

Whitehead var starfs­maður og meðal lykil­stjórnenda Goldman Sachs í 37 ár. Hann bar ábyrgð á fyrstu alþjóð­legu verkefnum Goldman Sachs, þar sem unnið var þvert á landmæri margra af stærstu fjármála­markaða heimsins, á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar. Þessi vinna er af mörgum talin hafa flýtt til muna alþjóða­væðingu fjármála­markaða, þar sem fjármála­stofnanir eru fjár­magnaðar þvert á landamæri og starfsemi þeirra skipulögð með þeim hætti.

Samkvæmt fréttum Bloomberg lést Whitehead á heimili sínu.

https://www.youtube.com/watch?v=htAs9K5sK5o

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár