Gáfu Sjálf­stæðis­flokknum vinnuna

Almanna­tengsla­fé­lagið KOM styrkti Sjálf­stæð­is­flokk­inn um 235.312 krónur í fyrra. KOM hefur fengið ýmis verk­efni beint eða óbeint frá rík­inu síð­ast­liðin miss­eri svo sem kynn­ingu á RÚV-skýrslu og aðstoð við að bæta ímynd lög­reglu og lög­reglu­stjóra vegna leka­máls­ins.

Framkvæmdastjóri KOM
Fram­kvæmda­stjóri KOM Friðjón R. Frið­jóns­son er vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Pressphotos

Samkvæmt úrdrætti úr árs­reikn­ingi Sjálf­stæð­is­flokks­ins árið 2014 styrkti almanna­tengsla­fé­lagið KOM flokk­inn um 235.312 krónur. Í sam­tali við Stundina segir Friðjón R. Frið­jóns­son, fram­kvæmda­stjóri félags­ins og vara­þing­maður flokks­ins, að ekki sé um að ræða styrk upp á fé heldur vinnu. Að hans sögn gaf félagið alla sína vinnu fyrir flokk­inn á sein­asta ári. Hluti þeirrar vinnu var vegna leka­máls­ins. Ljóst er að þetta er í fyrsta skipti sem KOM hefur styrkt flokk­inn, í það minnsta á árunum eftir hrun. Félagið skipti um eig­endur um ára­mótin 2013-2014 en þar áður var það í eigu Jóns Hákons Magn­ús­sonar. 

„Í lögum um fjár­mál stjórn­mála­flokka segir að það þurfi að verð­meta vinnu sem er innt að hendi. Þetta er sá verð­miði sem að við settum á þá aðstoð sem við veittum fram­kvæmda­stjóra Sjálf­stæð­is­flokks­ins yfir árið í heild. Miðað við stand­ard verð hjá okkur, sem eru 15 þús­und krónur á tím­ann, þá jafn­gildir þetta um 20 tímum,“ segir Friðjón. Að hans sögn var hluti vinn­unar aðstoð vegna fram­kvæmda­stjóra­skipta.

Samkvæmt heima­síðu KOM sér­hæfir fyr­ir­tækið sig meðal ann­ars í almanna­tengslum sem tengj­ast hinu opin­bera. Eitt slíkra verk­efna var kynn­ing á skýrslu nefndar Eyþórs Arnalds um rekstur Rík­is­út­varps­ins í lok októ­ber. Friðjón hefur sagt að félagið hafi fengið 60 þús­und krónur fyrir það verk­efni. Fyrr á þessu ári var svo greint frá því að KOM hefði fengið nærri eina milljón króna frá rík­inu vegna aðstoðar við að bæta ímynd lög­reglu og lög­reglu­stjóra vegna leka­máls­ins og mis­taka við birt­ingu skýrsl­unnar um Bús­á­halda­bylt­ing­una. Á meðal ann­arra kúnna KOM eru Geir H. Haarde og Víglundur Þor­steins­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár