Sameinuðu austfirsku furstadæmin eða Drekabæli?

Það vantar ekki hugmynda­flugið hjá þeim sem skiluðu tillögum um nafn á nýtt sameinað sveitar­félag á Austur­landi.

Djúpavogshreppur er eitt þeirra sveitarfélaga sem sameinuð hafa verið á Austurlandi.
Djúpa­vogs­hreppur er eitt þeirra sveit­ar­fé­laga sem sam­einuð hafa verið á Aust­ur­landi. Mynd: Wiki Commons/Chensiyuan

Fjölmargar skemmtilegar hugmyndir að nafni á nýtt sameinað sveitar­félag Borgar­fjarðar­hrepps, Djúpa­vogshrepps, Fljótsdals­héraðs og Seyðis­fjarðar­kaupstaðar bárust í samkeppni þar um. Ljóst er að kímnin er ofarlega í hugum margra þeirra sem skiluðu tillögum. Aðrar eru hefð­bundnari og ýmsar vísa til örnefna á svæðinu.

Í ítarlegri frétt Austur­fréttar kemur fram að 112 tillögur hafi borist að 62 nöfnum.

Nafna­nefnd sem í eiga sæti fulltrúar allra gömlu sveitar­félaganna auk ungmenna­ráðs Fljótsdals­héraðs mun funda á föstu­daginn og ákveða hvaða tillögur verða sendar til umsagnar Örnefna­nefndar.

Í framhaldi af umsögn leggur nefndin síðan til þrjú til fimm nöfn sem íbúar geti kosið á milli samhliða kosningum til sveitar­stjórnar. Sú atkvæða­greiðsla verði þó einungis ráðgefandi fyrir nýja sveitar­stjórn sem taki ákvörðun um nafn á nýja sveitar­félagið.

Meðal nafna sem bárust eru Álfabyggð, Arðbær, Austur­ríki, Drekabæli, Frábær, Grautar­byggð, Hreppur rísandi sólar og Sameinuðu austfirsku fursta­dæmin.

Hér má lesa listann með öllum tillögunum á vef Austur­fréttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár