12 einstaklingar hafa látist í fangelsum síðan árið 1993

Í svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur, þing­manns Pírata, kemur fram að 12 ein­stak­lingar hafa lát­ist í vörslu lög­reglu síðan árið 1993. Embætti hér­aðs­sak­sókn­ara fer með rann­sókn slíkra mála.

Tólf ein­stak­lingar hafa lát­ist í fang­elsum síðan árið 1993. Þetta kemur fram í svari Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur þing­manns Pírata sem birt­ist á vef Alþingis í gær.

Þór­hildur Sunna spurði hversu margir ein­stak­lingar hafi látið lífið á meðan þeir voru í vörslu lög­reglu frá árinu 1965 og innan veggja íslenskra fang­elsa og var óskað eftir sund­ur­liðað eftir árum. Hún spurði jafn­framt í hversu mörgum til­fellum hafi rann­sókn farið fram á máls­at­vikum og aðdrag­anda and­láts við­kom­andi aðila og hverjir fari með rann­sókn slíkra mála.

Einnig var spurt hvort lög­reglan, sak­sókn­ari eða ein­hver annar aðili ann­ist slíkar rann­sóknir og hvernig slíkar rann­sóknir séu fram­kvæmdar.

Ráðu­neytið óskaði eftir upp­lýs­ingum frá við­eig­andi emb­ættum vegna fyr­ir­spurn­ar­innar og er svarið unnið í sam­ræmi við þær upp­lýs­ingar sem bár­ust. „Vegna þess tíma sem svörum við skrif­legum fyr­ir­spurnum er mark­aður reynd­ist ekki unnt að bíða frek­ari upp­lýs­inga og tekur svar ráð­herra mið af því.“

Í svar­inu segir að fang­els­is­mála­stofnun rík­is­ins hafi verið stofnuð árið 1989 en fyrir þann tíma ann­að­ist dóms­mála­ráðu­neytið dag­lega yfir­stjórn á rekstri fang­elsa. Gögn er varði fjölda and­láta í fang­elsum frá árunum 1965 til 1988 eru vistuð í Þjóð­skjala­safni Íslands en ekki vannst tími til að afla þeirra gagna við vinnslu svars­ins.

Fjöldi and­láta í fang­elsum frá stofnun Fang­els­is­mála­stofn­unar rík­is­ins 1. jan­úar 1989 hefur verið sem hér segir: 



1993: 1 ein­stak­lingur

1998: 3 ein­stak­lingar

2004: 1 ein­stak­lingur

2005: 1 ein­stak­lingur

2007: 2 ein­stak­lingar 


2012: 1 ein­stak­lingur

2013: 2 ein­stak­lingar

2017: 1 ein­stak­lingur lést á sjúkra­húsi í kjöl­far sjálfs­vígstil­raunar í fang­elsi tveimur dögum áður.

Andlát í vörslu lög­reglu og í fang­elsum voru rann­sökuð hjá lög­reglu til 1. júlí 1997 en af rík­is­sak­sókn­ara frá þeim tíma til 1. jan­úar 2016, segir í svari dóms­mála­ráð­herra. Þá hafi emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara tekið við rann­sókn slíkra mála.

Með lögum 2016 hafi verið sett á fót eft­ir­lits­nefnd með störfum lög­reglu og sé hlut­verk hennar meðal ann­ars að taka til athug­unar mál þegar maður lætur lífið í tengslum við störf lög­reglu óháð því hvort grunur er um refsi­vert brot.

Eftir sem áður fari hér­aðs­sak­sókn­ari með rann­sókn slíkra mála. Um fram­kvæmd þeirra gildi almennar reglur um rann­sóknir slíkra mála. Í svar­inu kemur enn fremur fram að ekki hafi verið unnt að svara nánar um fram­kvæmdir ein­stakra rann­sókna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár