Einn Héraðsdómur verði með yfirstjórn í Reykjavík en átta starfsstöðvar um landið

Starfs­hópur dóms­mála­ráð­herra um sam­ein­ingu hér­aðs­dóm­stól­anna átta í eina stofnun leggur til að sam­ein­aður dóm­stóll fái nafnið Hér­aðs­dómur og hafi áfram starf­semi á þeim átta stöðum þar sem hér­aðs­dóm­stólar starfa í dag.

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra.
Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Eyþór Árnason

Starfs­hópur sem Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra skip­aði í lok síð­asta vetrar til þess að fjalla um sam­ein­ingu hér­aðs­dóm­stóla lands­ins mælir með því að allir átta hér­aðs­dóm­stólar lands­ins verði sam­ein­aðir í einn undir nafn­inu Hér­aðs­dómur, yfir­stjórn dóm­stóls­ins verði stað­sett í Reykja­vík en starfs­stöðvar verði áfram á þeim stöðum þar sem hér­aðs­dóm­stól­arnir eru nú stað­settir.

Skýrsla starfs­hóps­ins var birt á sam­ráðs­gátt stjórn­valda í dag, en í hópnum sátu þau Sigurður Tómas Magn­ús­son, hæsta­rétt­ar­dóm­ari og for­maður stjórnar dóm­stóla­sýsl­unnar, Brynjar Níelsson, lög­maður og aðstoð­ar­maður dóms­mála­ráð­herra, og Eva Bryndís Helga­dóttir lög­maður.

Starfs­hóp­ur­inn leggur til að kveðið verði á um það í lögum um dóm­stóla að þrír starfs­menn verði að lág­marki starf­andi á hverri starfs­stöð, þar af að minnsta kosti tveir hér­aðs­dóm­arar eða einn hér­aðs­dóm­ari og einn dóm­ara­full­trúi. Lagt er til að horft verði til þess að sam­ein­ing dóm­stól­anna gangi í gegn 1. ágúst 2024.

Samkvæmt því sem fram kemur í sam­ráðs­gátt stjórn­valda er lagt til að dóm­stjóri hins sam­ein­aða Hér­aðs­dóms verði skip­aður til fimm ára af stjórn dóm­stóla­sýsl­unnar úr hópi starf­andi hér­aðs­dóm­ara á grund­velli aug­lýs­ingar. Sama er lagt til að gildi um skipun vara­dóm­stjóra dóm­stóls­ins.

Þá er einnig lagt til að dóm­stjóri ákveði fjölda starfs­manna við hverja starfs­stöð Hér­aðs­dóms og ráði aðra starfs­menn dóms­ins en hér­aðs­dóm­ara. Einnig er lagt til að dóm­stjóri hafi úthlutun allra mála sem rekin verða í hér­aði á hendi sér og að mögu­legt verði fyrir dóm­stjóra að úthluta málum án til­lits til þess hvar dóm­arar eða dóm­ara­full­trúar hafi fasta starfs­stöð og án til­lits til þess við hvaða starfs­stöð málin verði rekin.

„Þannig skap­ist svig­rúm til þess að úti­vist­ar­mál af ýmsum toga verði afgreidd á hvaða starfs­stöð Hér­aðs­dóms sem er og eftir atvikum önnur mál. Með þessu ætti jafn­framt að verða svig­rúm til að nýta mannauð á hér­aðs­dóm­stig­inu betur en nú er og eftir atvikum skapa sér­hæf­ingu í til­teknum mála­flokkum ef það þykir heppi­legt,“ segir í sam­an­tekt um efni skýrsl­unnar í sam­ráðs­gátt­inni.

Dóms­mála­ráð­herra birti fyrr á þessu ári áform um laga­setn­ingu um sam­ein­ingu hér­aðs­dóm­stól­anna í eina stofnun í sam­ráðs­gátt stjórn­valda og sagði þar að meðal ástæðna fyrir því að verið væri að skoða þessa sam­ein­ingu dóm­stól­anna væru ábend­ingar Rík­is­end­ur­skoð­unar í skýrslu frá 2020, þess efnis að sam­ein­ing hér­aðs­dóm­stóla væri skil­virkasta og árang­urs­rík­asta leiðin að auk­inni sam­ræm­ingu innan dóms­kerf­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár